NM barnaskóla: Grunnskóli Vestmannaeyja í 2. sæti eftir 3-1 sigur á Dönum

Skáksveit Grunnskóla Vestmanneyja sigraði danska sveit 3-1 í 3. umferð Norðurlandamóts barnaskólasveita sem fram fór í Örsundsbro í Danmörku í dag.  Nökkvi Sverrisson, Sindri Freyr Guðjónsson og Hallgrímur Júlíusson unnu sínar skákir en Alexander Gautason tapaði.  Sindri hefur sigrað í öllum skákum!   Eyjamenn eru nú í öðru sæti í flokknum með 8 vinninga en mótinu líkur á morgun með 4. og 5. umferð. 

 

Grunnskóli Vestmannaeyja – Jetsmark (Danmörk) 3-1

  1. Nökkvi Sverrisson – Morten Randrup Nielsen 1-0
  2. Alexander Gautason – Helene B.Søndergaard 0-1
  3. Sindri Freyr Guðjónsson – Jonas Søndergaard 1-0
  4. Hallgrímur Júlíusson – Kristine Larsen 1-0

Staðan:

  1. Svíþjóð I 10 v.
  2. Grunnskóli Vestmannaeyja 8 v.
  3. Noregur 5,5 v.
  4. Svíþjóð II 5 v.
  5. Danmörk 4,5 v.
  6. Finnland 3 v.

Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja:

  1. Nökkvi Sverrisson (1540) 2 v. af 3
  2. Alexander Gautason (1475) 1 v. af 3
  3. Sindri Freyr Guðjónsson (1505) 3 v. af 3
  4. Hallgrímur Júlíusson (1390) 2 v. af 3
  5. Kristófer Gautason (1160)

Liðstjóri er Helgi Ólafsson.   

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.