Rétt í þessu lauk Norðurlandamóti barnaskólasveita í skák, Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja náði 2. sæti og úrslit réðust á síðustu skákunum. Okkar menn aðeins hálfum vinningi frá gullinu. Stórglæsilegur árangur hjá þessum knáu eyjapeyjum.
Sveit eyjamanna skipa þeir: Nökkvi Sverrisson, Alexander Gautason, Sindri Freyr Guðjónsson , Hallgrímur Júlíusson og varamaður var Kristófer Gautason.
Liðstjóri var stórmeistarinn Helgi Ólafsson.
Lokastaðan í mótinu var eftirfarandi:
Sviþjóð Örsundsbro 14 vinningar
Grunnskóli Vestmannaeyja 13,5 vinningar
Noregur Korsvoll 10,5 vinningar
Danmörk Jetsmark 9 vinningar
Svíþjóð Mälarhöjdens 7 vinningar
Finnland Mänttä 6 vinningar
eyjar.net óskar skáksveitinni innilega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.