Vill heilbrigðisþjónustu til sveitarfélaga

„Ég held að til lengri tíma sé betra ef sveitafélögin taka að minnsta kosti við hluta af heilbrigðisþjónustunni og að það verði gert með sama hætti og gert var með grunnskólana. Að málaflokkurinn sé fluttur yfir og einhverjir tekjustofnar með,” segir Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Hornafjarðar.

Ríkisendurskoðun skilaði í byrjun þessa mánaðar niðurstöðum stjórnsýsluúttektar sinnar á þjónustusamningi sem er í gildi milli sveitarfélagsins og heilbrigðisráðuneytisins um heilsugæslu og öldrunarþjónustu. Þar kom fram að stofnunin teldi ekki endilega að samningurinn þjónaði fjárhagslegum hagsmunum ríkisins betur en ef það sæi sjálft um reksturinn. Veigamesta aðfinnsla Ríkisendurskoðanda sneri að gæðaeftirliti sem hann taldi ábótavant.

Hjalti segir þó ráðuneytið einnig bera ákveðnar skyldur í þeim efnum. „Við erum til dæmis með annan samning við félagsmálaráðuneytið um málefni fatlaðra þar sem þeir leggja fram ákveðið gæðamódel sem við eigum að vinna eftir. Það væri mjög eðlilegt ef heilbrigðisráðuneytið gerði slíkt hið sama til að mæla gæði þjónustunnar alls staðar með sambærilegum hætti. Með þessu er ég ekki að bera blak af okkur fyrir að hafa ekki sett okkur gæða og þjónustumarkmið. En ríkisendurskoðandi segir beinlínis að ráðuneytið hafi ekkert skipt sér að þessu.”

 Nánar í Blaðinu í dag

Tjáðu þig um málið á www.eyjar.net/spjall

 

Nýjustu fréttir

Markmiðin eru skýr – að efla Vestmannaeyjar
Stórskipakantur mikilvægur í mögulegri fóðurframleiðslu
Stórleikur í Eyjum – toppslagur ÍBV og Vals
Prófkjör framundan hjá sjálfstæðismönnum í Eyjum
Vara við áhrifum samgönguáætlunar
Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins
Bærinn í samstarf við Markaðsstofu Suðurlands
Alex Freyr Hilmarsson íþróttamaður Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.