Hermann skoraði í útisigri hjá Portsmouth

Hermann Hreiðarsson skoraði síðara mark Portsmouth sem vann góðan útisigur á Fulham, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigrinum renndi Portsmouth sér uppí fimmta sæti deildarinnar og hefur nú skorað næstflest mörk allra liðanna.

Benjani Mwaruwaru kom Portsmouth yfir á 50. mínútu og þremur mínútum síðar bætti Hermann Hreiðarsson við marki, 2:0, eftir mikinn sprett upp vinstri kantinn og samleik við Nico Kranjcar.

Hermann fór síðan af leikvelli þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.

Fulham er með þessum úrslitum dottið niður í fallsæti deildarinnar með 7 stig en fyrir neðan eru Bolton og Derby með 5 stig hvort.

Nýjustu fréttir

Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.