Ríkiskaup auglýsa lokað útboð vegna reksturs Bakkafjöruferju

Ríkiskaup auglýsa í dag í Morgunblaðinu eftir þáttakendum í forvali vegna útboðs á rekstri ferjusiglinga milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru. Samkvæmt auglýsingunni er samningstíminn 15 ár. Ferjan skal vera fyrir 250 farþega og 45 bíla og hugsanlega er rekstur hafnar í Bakkafjöru innifalinn.

Auglýsinguna má lesa hér að neðan:

14336 – Forval
Ferjusiglingar milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru

Ríkiskaup, fyrir hönd Siglingastofnunar, efna til forvals nr. 14336 til að velja þátttakendur í lokað útboð fyrir rekstur ferjusiglinga milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru.

Byggja á ferjuhöfn við Bakkafjöru um 2 kílómetra vestan við ósa Markarfljóts. Ferjuhöfnin verður innan við bogadregna grjótgarða. Siglingalengdin milli ferjuhafnar og Vestmannaeyja er innan við 7 sjómílur.

Verkefnið sem boðið verður út
Verkefnið sem boðið verður út er rekstur á ferjuleiðinni Bakkafjara – Vestmannaeyjar ásamt farþegaaðstöðu á báðum stöðum og skal ferjan vera í eigu bjóðanda. Stefnt er að 15 ára samningstíma. Ferjan skal vera ekju- og farþegaskip sem getur tekið að lágmarki 250 farþega og 45 bíla. Hugsanlegt er að rekstur hafnar í Bakkafjöru verði innifalinn í verkefninu.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.