Elliði Vignisson svarar Sigurði Vilhelmssyni

Sæll félagi

Sá á þínu fína vefsvæði að þú hefur, eins og svo margir áhyggjur af vatnsmálum okkar Eyjamanna.

Meðal annars segir þú:
“Nú væri gaman að vita frá hverjum bæjarstjórinn okkar hafði þetta loforð um nýja vatnslögn til Eyja og hvort því loforði hafi fylgt einhver skilyrði.  Af þessum nýjustu fréttum að dæma hefur því einhver logið að Elliða, því varla færi Elliði að ljúga að okkur.  Elliði þarf að upplýsa okkur bæjarbúa um hvað hefur breyst og hvort við megum búast við umtalsverðum hækkunum á gjaldskrá ef ríkið neitar að borga leiðsluna. “

Þess vegna sendi ég þér hér yfirlýsingu Hannesar Smárasonar stjórnarformanns GGE þar sem framkemur að Geysir Green Energy muni með sínum eignarhluta (sem er ólíkt stærri en þau 6,7% sem við áttum) ábyrgjast gagnvart Vestmannaeyjabæ að félagið muni styðja ákvarðanir um lagningu nýrrar vatnslagnar til Vestmannaeyja og að tryggður verði eðlilegur rekstur og lögbundnar skyldur um vatnsveitu Vestmannaeyja.

Þá stendur eftir hvort ástæða sé til að óttast ofur verðlagningu en vonandi er slíku ekki fyrir að fara.  Bæði er girt fyrir slíkt í lögum um vatnsveitur og einnig segir í viðauka við samning þann sem var undirritaður þegar HS hf og Bæjarveitur voru sameinaðar að “allar hækkanir/lækkanir á gjaldskrá nýs fyrirtækis (aðrar en lækkun vegna orkuöflunar) verði samræmdar þannig að ef breyta þarf verði á einu veitusvæði nái sú breyting til allra”. (sjá mynd hér að neðan).  Þannig að ef hækka á vatnið hér þá þarf að gera það á öllu veitusvæðinu.

Hitt er svo annað mál að það er ekkert óeðlilegt að ríkið hafi aðkomu að lagningu á vatnslögn milli lands og Eyja, hvort sem við erum hluthafar í HS eða ekki.  Á meðan ég átti sæti í stjórn HS var það oftar en einu sinni rætt að aðkoma ríkisins væri forsenda þessarar lagningar. 

Sem sagt þessi mál eru ekki í öðrum farvegi en þau hefðu verið ef við hefðum átt okkar 6,7%.

Kveðja

Elliði Vignisson

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.