Flugfélag Íslands og Vegagerðin skrifa undir samning um flug til Vestmannaeyja

Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Nýr samningur tekur gildi þann 01. nóvember 2007 og gildir til loka ársins 2009 en möguleiki er að framlengja samninginn um tvö ár til viðbótar eða til loka ársins 2011.Flugfélag Íslands tók aftur upp flug til Eyja fyrir réttu ári og hefur sinnt því meðan unnið var að útboði. Í framhaldi af útboði sem haldið var sl. sumar ákvað samgönguráðherra svo að fela Vegagerðinni að semja við Flugfélag Íslands um flug á þessari leið.

Flognar verða 15 ferðir í viku á veturna, tvær ferðir alla daga nema föstudaga, þá verða þrjár ferðir farnar. Yfir sumartímann verða 3 ferðir í boði alla daga nema miðvikudaga og laugardaga en þá verða 2 ferðir í boði.

Nýjustu fréttir

Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.