Aflaverðmæti eykst um 12% milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 51,9 milljarði króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2007 samanborið við 46,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 5,5 milljörðum króna eða 11,8% milli ára. Aflaverðmæti júlímánaðar nam 5,4 milljörðum en í júlí í fyrra var verðmæti afla 6 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júlí orðið 38,2 milljarður miðað við 34,8 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 9,9% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 19,7 milljarðar og jókst um 20,6%. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum, sem er 16,7% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 7,6%, var 2,4 milljarðar króna.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 19,4%, nam 2,9 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 38,1% og nam 10 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra og kolmunna að verðmæti 2,9 milljarðar samanborið við 3,3 milljarða 2006.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 23,3 milljarðar króna, sem er auking um 5,4 milljarða eða 29,8%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 18,4%, var 8,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 13,8 milljarðar og dróst saman um 8,2% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 5,1 milljörðum sem er 3,7% aukning.

Nýjustu fréttir

Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar
Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.