Þetta er fyrir neðan allar hellur ÍR-ingar!

En ekkert  lið frá  ÍR ?  Jú, jú þeir  bara  ákváðu upp á sitt einsdæmi að  vera ekkert að leggja það á sig að  ferðast  til  Vestmannaeyja til að spila körfubolta, það væri nú allt of erfitt að vera að standa  í því.  OG LÉTU ENGAN VITA  AF ÞESSARI  ÁKVÖRÐUN.    Þessi  framkoma  er svo  gjörsamlega fyrir neðan allar hellur að  menn verða  bara orðlausir af undrun.  Hvers konar  aumingjaskapur  er þetta eiginlega ?  Krakkarnir frá okkur eru að fara í keppnisferðir víða um land  mörgu sinnum  yfir  veturinn,  og  telja það ekki eftir sér.  En nei, ef það þarf að  leggja  eitthvað á  sig á  móti  í eitt skipti af okkar mótherjum,  þá er  bara EKKERT VERIÐ AÐ MÆTA.  Það sem svíður mest undan svona framgöngu er að þessir peyjar  okkar sem eru að leggja á sig ómælt erfiði við æfingar og keppnisferðir til að taka þátt, og ferðast til þess mörgun sinnum yfir veturinn, fá ekki langþráðan leik á heimavelli.  Þetta kemur mest niður á þeim.  Þá langaði að SPILA á heimavelli,  það er skemmtilegast, það eru laun erfiðisins. 

tekið af ibvkarfa.blog.is

Nýjustu fréttir

Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.