Afsökunarbeiðni frá ÍR-ingum.

Kæri Björn, aðrir forráðamenn körfuknattleiksdeildar ÍBV og iðkendur  körfubolta í 9.flokki drengja.

Vegna atviks sem átti sér stað síðastliðna helgi þar sem láðist að tilkynna um forföll okkar ÍR-inga vegna bikarleiks sem átti að spilast laugardaginn 24.nóvember viljum við biðjast afsökunar á þeim mistökum sem áttu sér stað vegna málsins. Okkur er ljóst að framferði okkar er ekki til eftirbreytni en þar sem um mannleg mistök var um að ræða er það von okkar að þið takið afsökunarbeiðni okkar til greina.

 

Sérstaklega viljum við taka fram að við hörmum háttsemi okkar, þ.e. að tilkynna ekki forföll í leikinn, enda kemur hún mest niður á iðkendum flokksins sem hafa vafalaust hlakkað til að fá að spila á sínum heimavelli.

 Vegna þessa máls munum við þjálfarar sem og aðrir sem koma að starfsemi körfudeildar ÍR læra af reynslunni og munu mistök sem þessi ekki endurtaka sig.

Með von um gott gengi í bikarkeppninni sem og á öðrum vígstöðum.

 Með kveðju, f.h. körfuknattleiksdeildar ÍR,

 Elvar Guðmundsson og Sveinbjörn Claessen, þjálfarar 8.flokks drengja ÍR.

 

 

Nýjustu fréttir

Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.