Einn fluttur á slysadeild

�?sök slyssins liggja ekki endanlega fyrir en lögreglan á Selfossi segir líkur benda til að fólksbifreiðin hafi verið á öfugum vegarhelmingi við áreksturinn.Báðar bifreiðarnar reyndust óökufærar eftir áreksturinn. (meira…)

Ragna og Halla með erindi um íslamska menningu

Hluta af náminu tóku þær í Egyptalandi, en þaðan komu þær í jólafrí til Íslands. Í Egyptalandi fundu þær fyrir því hve íslömsk menning er ólík okkar menningu og hve stóran sess trúarbrögðin skipa í hinu daglega lífi. �?ær munu segja frá náminu, dvöl sinni í Egyptalandi og fjalla um íslamska menningu á bókasafninu. (meira…)

Bjarni Hólm stóð sig vel hjá GAIS

Nilsson sagði í samtali við sænska knattspyrnu vefmiðilinn, Fotbolldirekt, á laugardaginn að forráðamenn félagsins myndu ákveða næstu skref um helgina og því er ljóst að félagið hefur nokkurn áhuga á leikmönnunum.“�?eir stóðu sig mjög vel og eru mjög duglegir leikmenn.”“Við munum setjast niður um helgina og ákveða hvort þessir leikmenn henti okkar liði.”Eyjólfur er 22. […]

Uppselt á þorrablótið

Kjartan Björnsson hárskeri hefur sem fyrr veg og vanda að blótinu en hljómsveitin Karma mun leika fyrir dansi loknu borðhaldi. Guðni Ágústsson verður með hátíðarræðuna og Karlakór Selfoss og gestir munu syngja ljóðið Selfossbær við lagið Undir dalanna rós. �?�?etta Ljóð hefur ekki fyrr verið sungið með þessu lagi opinberlega en Pálmi �?. Eyjólfsson samdi […]

Eldri kona mjaðmagrindarbrotnaði þegar ekið var á hana

�?á var Ipod spilari var tekinn í anddyri Fjölbrautaskóla Suðurlands á milli kl. 08:00 og 13:00. Eigandi spilarans hafði lagt hann frá sér á hattahillu og gleymt að taka hann með sér. �?egar svo átti að grípa til spilarans í hádeginu var hann horfinn. Skorað er á þann sem er með spilarann undir höndum að […]

Neita að greiða leigu

Máli sínu til stuðnings benda heimamenn á að íþróttasalurinn þoli ekki að bolta sé sparkað í veggi því veggklæðning springi og molni við festingar á mörkum og körfum. Jafnframt segja þeir að sundlaugin sé ekki tilbúin til afhendingar þar sem enn eigi eftir að stilla ýmis stjórntæki svo laugin teljist nothæf. Eignarhaldsfélagið Fasteign er eigandi […]

Leitarhundur á Litla-Hrauni

Hann segir í viðtali á mbl.is að hann telji að ekki sé spurning að það muni bera góðan árangur að hafa leitarhund að staðaldri í fangelsinu. “�?g hef verið að leita þarna og tollgæslan líka,” segir �?orsteinn. �?Við erum hins vegar ekki þarna alltaf en þegar við höfum verið þarna við leit […] hefur komið […]

Grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna á vegrið

Allir neituðu þeir að hafa ekið bifreiðinni og voru þeir vistaðir í fangageymslum. Tveir þeirra voru sviptir ökurétti og hefur lögreglan á Selfossi í haust og vetur ítrekað haft afskipti af öðrum þeirra fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum en málið er í rannsókn. Bifreiðin skemmdist nokkuð og sex […]

Huginn VE kominn með fullfermi

�?�?að er drullubræla á miðunum eins og er en við erum þokkalega bjartsýnie á framhaldið. Auðvitað vonumst við eftir auknum kvóta, sagði Guðmundur Huginn skipstjóri, en fyrir helgi var gefinn út 180.000 tonna kvóti. (meira…)

Tilbúinn í stríð við ráðherra

Bæjarstjórn �?lfuss segir Vegagerð ríkisins á rangri braut varðandi hugmyndir um 2+1 veg og legst bæjarstjórnin alfarið gegn slíkum áformum. Bæjarstjórar Árborgar og Hveragerðisbæjar taka í sama streng. Alþingi kemur saman í dag og mun samgönguráðherra leggja fram Vegaáætlun til næstu 12 ára á fyrstu vikum þingsins. �?á mun væntanlega skýrast hvernig staðið verði að […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.