Hörð aftan á keyrsla

Bílarnir voru að aka í vesturátt þegar bíll stöðvar á veginum og beið færis á að beygja inn afleggjara Ingólfshvols. Fyrri bíllinn hægði því ferðina en sá seinni náði því ekki í tæka tíð með fyrrgreindum afleiðingum. Bifreiðin sem ekið var aftan á skemmdist lítillega, að sögn lögreglu, ólíkt hinum bílnum sem talinn er ónýtur. […]

Norsk Hydro í heimsókn

Hitti hann meðal annars að máli �?laf Áka Ragnarsson, bæjarstjóra �?lfuss, Kjartan �?lafsson, alþingismann og formann atvinnumálanefndar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og �?orvarð Hjaltason, framkvæmdastjóra samtakanna. (meira…)

Lítið um úrsagnir

Alls voru 1.648 skráðir í framsóknarfélögin í Suðurkjördæmi fyrir kjördæmisþing flokksins sem haldið var í Reykjanesbæ 5. nóvember. �?egar kjördagur rann upp var félagatalið komið í um 1.900 en að kvöldi kjördags var það komið í 3.590. �?llum 16 ára og eldri, sem lögheimili áttu í kjördæminu, var heimilt að óska eftir inngöngu í Framsóknarflokkinn […]

�?riðji bróðirinn kjörinn stallari

Guðjón Ármannson var stallari 1997-1998, og Jón �?lafur Ármannsson var stallari 2000-2001. Stallarabræðurnir eru frá Vesturholtum 2 í Rangárvallasýslu;synir hjónanna Bjarnveigar Jónsdóttur og Ármanns �?lafssonar.Arnar vann afgerandi sigur í kosningunni í síðustu viku. Hlaut hann 103 atkvæði en mótframbjóðandi hans, Svavar Geir Pálmason, fékk 14 atkvæði. Í stjórn Mímis 2007 eru eftirfarandi: Arnar Ármannsson, stallari. […]

Hátt í þriðjungs fjölgun

Heildarfjöldi útkalla sjúkraflutningamanna í Árnessýslu árið 2006 var 1.391 eða 3,81 útköll á sólarhring að jafnaði. Árið 2005 voru sjúkraflutningamenn kallaðir út 973 sinnum sem eru að meðaltali 2,66 útköll á sólarhring. Aukningin nemur um 30 prósentum. Í samantekt Hsu segir að það skýrist að hluta til með því að 1. júní 2006 tók útkallslið […]

Oddvitinn óhress með verðið

Einkahlutafélagið �?rím og Túmmím var kaupandi lóðanna sem eru við Klausturgötu C í Klausturhólalandi; samtals 65.420 fermetrar að flatarmáli. �?rím og Túmmím er með sama heimilsfang og Guðmundur og Margrét segir Guðmund sjálfan hafa annast kaupin. Kaupverðið greiddi Guðmundur að hluta með 5.650 fermetra lóð á sama stað sem hann átti sjálfur en milligjöfin, 2,15 […]

Heimaey VE lagt og leitað að nýju skipi

�?Hráefni fyrir vinnsluna í frystihúsinu verður útvegað með viðskiptum við aðra báta eða af fiskmarkaði á meðan við leitum að öðru skipi. Heimaey var orðin gömul og þreytt og kominn tími á endurnýjun.�?�?ess má geta að Snorri Sturluson VE sem einnig er í eigu Ísfélagsins kom til Eyja á þriðjudagskvöld með aflaverðmæti fyrir u.þ.b. 86 […]

Magnús �?ór undir feldi

Áformað er að ný stjórn kjördæmisfélags Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi komi saman um helgina til að ræða framboðsmál og skipan á lista. �?Við hljótum að klára listann á kjördæmisþingi í febrúar en eins og staðan er nú þá er allt opið,�? segir Magnús �?ór. (meira…)

Með hass í leggöngum

Um klukkustund eftir að konunni var sleppt lausri var hún handtekinn fyrir akstur udir áhrifum fíkniefna.Konan játaði brot sín fyrir dómi en hún á fleiri dóma að baki, meðal annars fyrir fíkniefnabrot. Var hún jafnframt dæmd til sviptingar ökuleyfis ævilangt. (meira…)

Gjalskráin vitlaus og forsendurnar rangar

�?Við fórum út í þessar aðgerðir vegna þess að gjaldskrá Herjólfs er vitlaus og forsendur fyrir henni eru einfaldlega rangar. �?g get nefnt sem dæmi að fyrir bíl sem er fimm metra langur þá kostar farið fyrir bílinn einan 2000 krónur eftir hækkunina. En fyrir samskonar bíl, fimm metra og einn sentímetra langan, kostar helmingi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.