Í dag er staðan þannig á samgönguleiðum milli lands og Eyja að allir starfsmenn sem þar starfa eru á uppsagnarfresti. Öllum starfsmönnum Herjólfs var sagt upp störfum í lok ágúst.
Örfáum dögum síðar tilkynnti Flugfélagið Ernir um að félagið myndi hætta flugi milli lands og Eyja. Í gær bárust svo fréttir þess efnis að Isavia hafi sagt upp öllum starfsmönnum sínum í Vestmannaeyjum.
Með þeirri aðgerð má segja að allir þeir starfsmenn sem starfa við samgöngur á milli lands og Eyja séu á uppsagnarfresti. En hvar stendur hnífurinn í kúnni?
Ef skoðað er hvað forsvarsmenn félagana hafa sagt er ljóst að enginn af þessum aðilum telur sig geta haldið úti óbreyttri starfssemi vegna fjárhagserfiðleika. Vantar þar upp á hundruðir milljóna króna. Viðræður Herjólfs ohf. við ríkið eru nú nýhafnar.
Af sömu ástæðu hætti flugfélagið Ernir áætlunarflugi milli lands og Eyja. Hörður Guðmundsson, forstjóri flugfélagsins sagði að félagið þyrfti ríkisstyrk til að geta haldið uppi samgöngum til og frá Eyjum.
Og nú síðast er það ríkisfyrirtækið Isavia sem nýtir sér ástandið með uppsögnum á öllum starfsmönnum sínum í Vestmannaeyjum. Er til of mikils mælst að ríkið kippi þessari grunnstoð í liðinn við stærsta eyjasamfélagið á þessu landi?
Ráðherrar, þingmenn – hvert er planið?
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst