Karlalið ÍBV í fótbolta leikur við Vestra á Ísafirði í dag. Leikurinn hefst kl. 14.00 og hægt er að horfa á leikinn með því að kaupa aðgang á lengjudeildin.is.

Búast má við spennandi leik en einungis munar einu stigi á liðunum, ÍBV er í fjórða sæti með 13 stig en Vestri er í því sjötta með 12 stig.