Ákvörðun Icelandair að hætta öllu áætlunarflugi til Vestmannaeyja frá og með 31. ágúst sl var til umræðu á fundi bæjarstjórnar í liðinni viku. Sú ákvörðun var mikil vonbrigði, sérstaklega í ljósi þess að félagið hafði áður gefið út að flogið yrði á markaðslegum forsendum út september. Í kjölfarið óskaði bæjarstjóri f.h. bæjarráðs eftir fundi með samgönguyfirvöldum um stöðuna sem upp er komin og fór sá fundur fram síðastliðinn þriðjudag með samgönguráðherra og vegamálastjóra, ásamt öðrum fulltrúum Vegagerðarinnar. Ráðherra tók undir áhyggjur bæjarráðs af stöðunni og var á fundinum ákveðið að hefja vinnu við að finna mögulegar lausnir til þess að tryggja flug til Vestmannaeyja. Á fundinum kom fram skilningur á því að ekki verði við það búið að einungis ein samgönguleið sé til og frá Vestmannaeyjum.

Í sameiginlegri bókun bæjarfulltrúa um flugsamgöngur segir: Bæjarstjórn leggur mikla áherslu á að áætlunarflug sé milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Skilningur er á milli aðila að ekki verði við það búið að einungis ein samgönguleið sé til og frá Vestmannaeyjum. Mikilvægt er að vinna í Vegagerðinni og samgönguráðuneytinu gangi hratt og vel fyrir sig, svo að það þjónusturof sem nú varir verði stutt. Ráðherrar og þingmenn þurfa að beita sér fyrir því.