Verbúðin
27. febrúar, 2022

Þættirnir Verbúðin vöktu mikla athygli í vetur, ekki hvað síst hjá okkur sem vorum ung á þeim tíma og upplifðum stemninguna. 

Sjálfur byrjaði ég einmitt á sjó á togara 1985/86 og upplifði ýmislegt þar, sem hagsmunaaðilar í sjávarútveginum í dag vilja sem minnst tala um og upplifði ég þar á meðal gríðarlegt brottkast, eitthvað sem gerði það að verkum að ég hef verið á móti kvótakerfinu frá þeim tíma. 

Ekki batnaði það þegar maður var farinn að vinna í frystihúsi. Man m.a. eftir því á meðan einhver netaútgerð var af einhverju viti hér í Eyjum ennþá, þá var stundum raðað þorski í eitt hornið í kælinum og ufsa í næsta horn en í miðjuna var settur ufsinn af bátunum sem voru búnir með þorskkvótann.

Einnig var ég vitni af því, þegar þekktur togaraskipstjóri hér í bæ var “látinn fara” þegar hann kom með allt of smáan fisk í land. 

En margt hefur nú breyst frá þessum tíma, sumt til betri vegar en allt of margt, eins og t.d. kvótakerfið sjálft, til mun verri vegar, en nóg um það.

En já, verbúðartíminn. Þarna kynntist maður mörgum skemmtilegum karakterum og já, það var oft mikið fjör á verbúðunum og oft miklu skemmtilegra heldur en að fara á skemmtistað. 

Frank og Hafsteinn

Við vorum að vinna saman í flatningu m.a. í móttökunni ég og skólabróðir minn, Hlynur Stefáns, þetta hefur verið 80/81 og lentum við þar m.a. í því að vinna með mjög sérstökum karakterum, Frank og Hafsteini. Frank var svona 2 metrar á hæð og með alveg ægilegar skögultennur, beint upp í loftið sem gerði það að verkum að menn voru fljótir að byrja að kalla hann Frankenstein, en Frank þoldi ekki nafnið og var duglegur at taka í lurginn á okkur strákunum þegar við kölluðum hann þetta, en Hlynur hafði voðalega gaman af því að stríða honum og eitt skiptið elti Frank Hlyn alveg inn á innsta salerni við kaffistofuna hjá okkur.

Hlynur fór inn og læsti að sér, en Frank, sem var nú alveg ákveðin í því að nú yrði tekið í strákinn, náði sér í stól og sat við dyrnar. Það sem hann sá hins vegar ekki, er að það var loftop á milli salernanna, þannig að Hlynur fór bara upp á og skreið yfir eftir loftopinu og niður hinum megin, kom svo fram í sal og við héldum áfram að vinna. Eftir nokkra stund kom verkstjórinn og spurði hvar Frank væri? Við vísuðum honum að sjálfsögðu inn á klósett og fórum á eftir honum og þar sat Frank ennþá og bankaði létt á dyrnar, og síðasta setning sem við heyrðum var “Farðu nú að koma fram, Hlynur minn, ég ætla bara að rassskella þig smá” Varð hann ansi skömmustulegur þegar hann sá að Hlynur hafði leikið á hann. 

En ef Frank var svolítið sérstakur, þá var Hafsteinn eiginlega hálfgerður furðufugl. Eftir að hann fékk útborgað í fyrsta skipti fór hann og keypti sér forláta Polaroid myndavél og fór að mynda í gríð og erg út um allt og var oft að sýna okkur myndir sem voru eiginlega af engu, en einn daginn kom hann rosalega laumulegur til okkar og sagði “Nú er ég sko með flottar myndir til að sýna ykkur” en það tók okkur smá stund að fatta það, að allar myndirnar voru af jafnaldranum.

Þegar leið á vertíðina, þá vildi enginn vera með þeim félögum í herbergi á verbúðunum, þannig að þeir enduðu saman í herbergi og í vertíðarlok fóru þeir saman frá Eyjum. 

En já, sögurnar af verbúðunum voru oft margar ansi skrautlegar og margar hreinlega ekki birtingarhæfar. 

Ein vakti þó mikla athygli, en þannig var það eina vertíðina að ein áhöfn af netabát var saman í herbergi. Nokkru eftir að vertíðin byrjaði eignaðist einn í herberginu kærustu, sem mig minnir að hafi verið dönsk, en einn daginn þá fór báturinn ekki á sjó og skýringin var gefin sú, að það hefði komið upp lekandi í herberginu og ekki bara hjá kærastanum, heldur hjá öllum í áhöfninni, svo eitthvað hefur gengið á í herberginu. 

En já, maður átti sjálfur margar skemmtilega helgina á verbúðunum og kom þó nokkrum sinnum fyrir að maður gisti, þó svo að maður ætti heima hér i bæ.

Að lokum þetta, vonandi kemur framhald af þessum Verbúðar þáttum, þó svo að nokkuð sé orðið síðan að verbúðum, hér a.m.k. var lokað, þá er ansi mikið eftir í sögunni varðandi kvótakerfið og alla spillinguna sem fylgir því og mun fylgja því áfram á meðan það lifir. 

Góðu fréttirnar eru þó þær að kvótakerfið verður ekki eilíft og enginn vafi í mínum huga um það að því verði breytt fyrr eða síðar.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
7. nóvember 2025
20:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
ludra
8. nóvember 2025
16:00
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.