Góða nótt
5. nóvember, 2022

Þetta er Raoul Wallenberg. Sænskur diplomat sem bjargaði þúsundum gyðinga í síðari heimstyrjöldinni með því að veita þeim sænskan ríkisborgararétt, þvert á lög landsins sem hann starfaði í, Ungverjalandi.

Þetta er Hermann Jónasson forsætisráðherra Íslands árin 1934 til 1942. Ég veit svo sem ekkert um ráðherratíð Hermanns frekar en nafna hans Gehrings annað en það, að hann var ábyrgur fyrir brottvísun fjölda gyðinga sem sóttu um hjálp í landinu okkar en var miskunnarlaust vísað á brott í skjóli laga. Flestir mættu ölögum sínum í útrýmingabúðum.

Stundum höfum við á orði að í upphafi skyldi endirinn skoða. Skyldi Hermann Jónasson hafa gert sér grein fyrir því að þegar tímar liðu fram yrði hans einungis minnst fyrir þau voðaverk sem hann varð ábyrgur fyrir? Beitti hann lögunum fyrir sig?

Þetta er Fida Abu Libdeh sem kom frá Palestínu til Íslands sem metnaðarfullur unglingur. Hún heillaðist af gífurlegum krafti og hreinleika íslenskrar náttúru og stofnaði GeoSilica árið 2012.⁠ Fyrirtækið er metið á milljarða króna í dag. Ef við leggjum framlag hennar til íslensk samfélags á lóðarskálarnar gæti framlag hennar til samfélagsins líklega greitt fyrir alla flóttamenn sem við erum svo örlát að senda til Grikklands. Takk fyrir þitt framlag til samfélagsins Fida Abu Libdeh.

Skyldi Raoul Wallenberg hafa haft frægð og frama í huga þegar hann bjargaði þúsundum, já og reyndar tugþúsundum gyðinga frá útrýmingarbúðunum í huga eða var það bara manngæska? Nafn Raoul Wallenberg lifir að eilífu fyrir framlag hans til mannúðarmála. Man einhver eftir Oscar Schindler sem lagði líf sitt að veði við að bjarga yfir þúsund gyðingum í heimstyrjöldinni síðari? Þannig verða hetjur til.

Þetta er þotan sem Jón Gunnarsson leigði frá erlendu leigufyrirtæki til að flytja 15 einstaklinga frá Íslandi til Grikklands. Með þeim fylgdi fjöldi íslenskra lögregluþjóna sem flugu á vit sólarinnar sem þeir gátu baðað sig í á kostnað þín sem þessar línur lest í einhverja klukkutíma áður en hinn bitri raunveruleiki flugs til baka tók við með heimsókn í fríhöfnina sem selur hinar ýmsu vörur á niðursettu verði. Hugmyndin að þessari framkvæmd eins og hún leggur sig fæddist í einhverjum kolli. Hún varð ekki til af sjálfu sér. Spurningin er, hver átti kollinn.

Þetta eru Jón Gunnarsson og Katrín Jakobsdóttir sem síðustu fimm ár hafa snúið bökum saman við að vísa fólki sem myndi ekki bara auðga menningu okkar, heldur leggja af stað út í lífið í nýju landi sem nýtir þjóðfélagsþegnar. Hvorki Jóns né Katrínar verður minnst fyrir hetjuskap í framtíðinni. Í kvöld leggja vinirnir Jón og Kata höfuðið á koddann broshýr eftir góðgerðir dagsins og bjóða góða nótt.

Á götum Aþenu snýr móðir Yasameen og Zöru Hussein sér að dætrum sínum. Góða nótt dætur, hallið ykkur að rennusteininum.

Góða nótt Katrín, góða nótt Jón.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 3 Tbl 25
3. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst