Herjólfur IV siglir eftir áætlun framan af degi í dag en í kvöld heldur ferjan til Hafnarfjarðar í slipp. Ferðir kl. 22:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 23:15 frá Landeyjahöfn falla úr áætlun.
Herjólfur II mun síðan hefja siglingar á morgun föstudaginn 7.október.

Við ræddu við G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúa vegagerðarinnar og ræddum við hann um stöðuna í Landeyjahöfn og líkurnar á því að Herjólfur III haldi fullri áætlun.”Það er heldur grunnt eins og staðan er núna fyrir Herjólf III. Dýpkunarskipið Álfsnes er við vinnu núna að reyna að ná dýpinu niður áður en Herjólfur III mætir. Við mældum þann 28. september. Grynningar höfðu þá myndast í hafnarmynninu.”

Dýpkunarskipið Álfsnes er í Landeyjahöfn og hefur verið við störf í höfninni í rétt rúma viku núna, þ.e.a.s. þegar veðuraðstæður leyfa að sögn Péturs.

“Herjólfur III ristir jú meira en Herjólfur IV og því er erfiðara með siglingar til Landeyjahafnar en nýja ferjan. Hann þarf meira dýpi, ræður verr við strauminn framan við höfnina, tekur meiri vind á sig og er að öllu leyti verri. Því er erfitt að segja til um hvort hann muni geta siglt til hafnarinnar jafn oft og Herjólfur IV myndi gera yfir sama tímabil. Dýpið var takmarkað fyrir Herjólf III við síðustu mælingu en við vonum að það verði komið nógu langt niður áður en hann hefur siglingar til hafnarinnar. Það gæti þó komið upp til að byrja með að hann nái ekki að fara inn til hafnarinnar á fjöru en fer létt með það á meðalsjávarhæð.”

Pétur staðfesti að komið gæti upp sú staða að Herjólfur gæti þá þurft að fara aðeins 4 ferðir á dag fyrst um sinn.

“Vegagerðin mældi í gær (sjá hér). Ef þörf þykir munum við líka reyna mælingu á föstudaginn ef það verður hægt sökum ölduhæðar. Dýpið núna þýðir að Herjólfur III getur þá ekki siglt á fjöru en nær því annars, ef aldan er í lagi.”