Árleg danssýning Grunnskóla Vestmannaeyja fór fram á Stakkagerðistúni nú fyrir hádegið en eftir sýninguna fóru fram formleg skólaslit hjá GRV. Nemendur hafa verið að æfa fyrir sýninguna í allan vetur undir stjórn Emmu Bjarnadóttur og var afraksturinn glæsilegur. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá því þegar nemendur dönsuðu sig í sumarfrí.