Aðalfundur Taflfélags Vestmannaeyja  var haldinn í skákheimili TV 1. júní sl.  Í skýrslu stjórnar kom fram að  helstu póstar í starfsemi félagsins voru  Skákþing Vestmannaeyja 2023 , skákkennsla fyrir krakka í Grunnskóla Vm. og þátttaka í Íslandsmóti skákfélags 2022-2023.   TV sendi þrjár  sex manna sveitir á Íslandsmót skákfélaga  sem fram fór í Fjölnishöllinni í

Grafarvogi í okt. 2022 og mars 2023  í 1., 3. og 4. deild.  Alls komu um 30 félagar TV að þessu verkefni.   Skáksveit TV var efst í 1. deild og færist upp í úrvalsdeild í haust. Í úrvalsdeild eru sex  sveitir og flestar eru með einn eða fleiri stórmeistara innanborðs og eru átta keppendur í hverri sveit.  Í þessu felst mikil áskorun sem krefst þess að TV styrki lið sitt. Þorsteinn Þorsteinsson skákmeistari er liðsstjóri

og hefur sveitin undir hans stjórn  náð mjög  góðum árangri  og myndað  samstillta  liðsheild.  Liðstjórar TV  í 3. og 4. deild  eru Ólafur Hermannsson, Hallgrímur Steinsson og Arnar Sigurmundsson.

Hallgrímur  Steinsson sem verið hefur formaður TV frá 2021 gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Eyjum  var kjörinn  formaður TV og aðrir  í stjórn eru  Hallgrímur Steinsson, Guðgeir Jónsson, Sæmundur Einarsson og Sigurjón Þorkelsson.  Skoðunarmaður TV er Ægir Páll Friðbertsson.  Karl Gauti var formaður  TV  2007-2013  og hefur verið virkur í starfsemi félagsins um langt árabil.

TV mun standa fyrir  50 ára goslokamóti  í  atskák  laugardaginn 9. sept. nk.  og fer mótið fram  á opna svæðinu í Þekkingarsetri Vm. að Ægisgötu 2.  Tefldar verða átta umferðir, umhugsunartími er 15 mín. á skák  + 5 sek. á hvern leik.   Aðstaða til mótshalds er mjög glæsileg og voru þar haldin tvö fjölmenn minningarmót á vegum TV , Beddamótið 2019 og Pallamótið 2021.    Reiknað er með góðri þátttöku keppenda víðs vegar af landinu en mótið hefst kl. 12.00 og lýkur kl. 18.00 með verðlaunaafhendingu.   Senn verður opnað fyrir skráningu keppenda á mótið á skák.is