Stelpurnar hófu leik í gær stundvíslega kl. 08:20 veðrið leikur við mótsgesti og spáin áfram góð. Verið er að prófa nýtt kerfi með úrslitaskráningu, dómarar skrá jafnóðum í síma sinn mörkin og er því hægt að fylgjast með stöðu leikja í rauntíma. Þó þarf að endurrræsa síðuna til að staða uppfærist. Úrslit má sjá undir úrslit og riðlar á heimasíðu mótsins.

Lögreglan í Vestmannaeyjum bendir á í tilkynningu að mikill fjöldi verður því í bænum og eru ökumenn beðnir að taka tillit til þess og aka varlega.

“Við viljum benda ökumönnum á að bannað er að stöðva og leggja ökutækjum á Hamarsveginum. ( þar sem flestir knattspyrnuvellirnir eru). Lögregla mun halda úti öflugu eftirliti í umferðinni, þar sem fylgst verður vel með ökuhraða, ástandi og réttindum ökumanna, lagningum, bílbeltanotkun, notkun farsíma og snjalltækja við akstur, fjölda farþega os.frv.”