Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag

Eyjahljómsveitin hOFFMAN sendir í dag frá sér plötuna VIÐ, þriðju breiðskífu sveitarinnar. „Við erum einfaldlega drullustoltir af þessari skífu,“ segir Gunnar Geir Waage. Á plötunni eru átta lög og íslenskan er nú komin í aðalhlutverk. hOFFMAN kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2003 og vakti athygli fyrir kraftmikið rokk og öfluga sviðsframkomu. Sveitin hætti árið […]
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni

Til stendur að flytja Mylluna úr Dalnum á allra næstu dögum, jafnvel strax í dag. Þetta segir í tilkynningu frá Myllumönnum. Þar segir jafnframt að þar sem flutningur Myllunnar úr Dalnum valdi almennt kvíða og þunglyndi meðal Eyjamanna var tekin sú ákvörðun að flytja hana ekki fyrr en að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Talið var að Eyjamenn […]
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn

Herjólfur ohf. vill góðfúslega benda farþegum sem ætla að ferðast annað kvöld og á fimmtudag á að spáð er hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. kemur fram að eingöngu sé um spá að ræða og því séu allar ferðir á áætlun. Ef gera þurfi breytingar verði þær tilkynntar um leið og ákvörðun […]
Olís deildirnar hefjast í vikunni

Það styttist í að tímabilið í Olís deildum karla og kvenna í handbolta hefjist. Olís deild karla hefst fimmtudaginn 3. september og Olís deild kvenna hefst laugardaginn 5. september. Olís deild karla Í opnunarleik Olís deildar karla mætast HK og KA í Kórnum fimmtudaginn 3. september kl. 19:00. Karlalið ÍBV hefur leik gegn Haukum í […]