Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Nú er VIÐ komin út á vínyl, CD og streymisveitum.

Eyjahljómsveitin hOFFMAN sendir í dag frá sér plötuna VIÐ, þriðju breiðskífu sveitarinnar. „Við erum einfaldlega drullustoltir af þessari skífu,“ segir Gunnar Geir Waage. Á plötunni eru átta lög og íslenskan er nú komin í aðalhlutverk.

hOFFMAN kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2003 og vakti athygli fyrir kraftmikið rokk og öfluga sviðsframkomu. Sveitin hætti árið 2011 en sneri aftur árið 2024 með Shame, fyrsta nýja laginu í 15 ár. Í kjölfarið fylgdu uppseldir tónleikar í Alþýðuhúsinu í Eyjum og ljóst varð að endurkoman var meira en stundarævintýri.

Nú er VIÐ komin út á vínyl, CD og streymisveitum. Ólafur Kristján Guðmundsson, söngvari sveitarinnar, semur textana og sækir þar meðal annars í eigin lífsreynslu. Nafn plötunnar segir líka sína sögu.

„Lífið er VIÐ – ekki ÉG,“ segir Gunnar Geir. „Látum VIÐ-væðinguna hefjast. Út um landið, inn á heimilin, í bílana, heyrnartólin, eyrnagöngin og hvert annað sem hún ratar.“

hOFFMAN skipa Ólafur Kristján Guðmundsson, söngur, Gunnar Geir Waage og Víkingur Másson, gítarar, Sæþór Ágústsson, bassi, og Karl Ágúst Guðmundsson, trommur.

„Til hamingju VIÐ,“ segir Gunnar Geir.

Rokkið lifir í Eyjum.

Meira í vefblaði Eyjafrétta á fimmtudaginn.

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.