Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína

Samfylkingin styrkir stöðu sína sem stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup fyrir RÚV. Flokkurinn mælist með 30,8% fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn fylgir á eftir með 24,7%. Helsta breytingin frá ágústmælingunni er sú að fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um 2,1 prósentustig. Samfylkingin bætir hins vegar við sig 1,2 prósentustigum og Viðreisn 0,9 stigum. Miðflokkurinn mælist með 15,0% […]
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að synja ritstjóra Eyjafrétta um aðgang að tölvupósti lögmanns vegna mögulegra starfsloka starfsmanns sveitarfélagsins. Nefndin telur gagnið falla undir takmörkun upplýsingaréttar vegna starfsmannamála. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar nr. 1391/2026, sem kveðinn var upp 29. september. Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta, óskaði 1. september eftir aðgangi […]
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári

Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, hefur birt veiðiráðgjöf fyrir norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna árið 2027. Samkvæmt frétt Hafrannsóknastofnunar hækkar ráðgjöfin fyrir allar þrjár tegundirnar. Mesta hækkunin er í makríl. Ráðið leggur til að aflinn verði að hámarki 352.938 tonn, sem er 102 prósenta hækkun milli ára. Hrygningarstofninn er nú metinn yfir varúðarmörkum og ráðgjafarreglan heimilar því meira […]
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE landa í Neskaupstað um þessar mundir. Bergey landaði um 60 tonnum í gær og Vestmannaey landar fullfermi í dag. Skipstjórarnir segja veðrið hafa verið hagstætt í veiðiferðunum en erfiðlega hafi gengið að finna ýsu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Stuttur túr hjá Bergey Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, […]
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband

Halldór B. Halldórsson tekur stöðuna á framkvæmdum á fjórum stöðum í Vestmannaeyjum í nýju myndbandi sínu. Ferðin hefst í Viðlagafjöru, þar sem áframhaldandi uppbygging er sýnd. Þaðan er haldið vestur í Áshamar og litið á framkvæmdir við byggingu fjölbýlishúss. Því næst flýgur Halldór drónanum yfir framkvæmdasvæðið við Íþróttamiðstöðina. Að lokum liggur leiðin á Sólhlíð, þar […]
Má skipta liði?

Hvíslað er um það í Eyjum að þingmenn Suðurkjördæmis mættu gjarnan hugsa út fyrir boxið við skipulag kjördæmavikunnar. Eða að minnsta kosti út fyrir hópferðabílinn. Enn á ný var fundi með bæjarstjórn Vestmannaeyja frestað vegna samgangna. Það er auðvitað snúið að koma heilu kjördæmisliði yfir sjóinn þegar ölduspáin hentar ekki dagskránni. En hver sagði að […]
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni

Um 5.500 tonn eru eftir af norsk-íslenska síldarkvóta Vinnslustöðvarinnar og reiknað með að veiðum úr honum ljúki um miðjan október. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef félagsins, þar sem einnig má sjá nýtt myndband Halldórs B. Halldórssonar og viðtal við Valdimar Gest Hafsteinsson, skipstjóra á Huginn VE. Huginn var nýkominn til heimahafnar í Vestmannaeyjum […]