Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Huginn VE kom til Vestmannaeyja með síldarfarm úr þriðja túr skipsins á norsk-íslenskri síld. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Um 5.500 tonn eru eftir af norsk-íslenska síldarkvóta Vinnslustöðvarinnar og reiknað með að veiðum úr honum ljúki um miðjan október. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef félagsins, þar sem einnig má sjá nýtt myndband Halldórs B. Halldórssonar og viðtal við Valdimar Gest Hafsteinsson, skipstjóra á Huginn VE.

Huginn var nýkominn til heimahafnar í Vestmannaeyjum með síldarfarm þegar Halldór tók Valdimar tali. Að sögn skipstjórans var þetta þriðji túr skipsins á norsk-íslenskri síld, en talsvert hefur einnig verið af íslenskri síld með í aflanum.

Sindri Viðarsson, sviðsstjóri veiða og vinnslu hjá Vinnslustöðinni, segir í umfjölluninni að veiðarnar beinist nú að norsk-íslensku síldinni, sem sé lítillega blönduð íslenskri síld. Hann reiknar með að þau 5.500 tonn sem eftir eru af kvótanum verði veidd á næstu tveimur vikum eða í kringum miðjan október.

Íslenska síldin tekur við í lok október

Stefnt er að því að hefja veiðar á íslenskri síld í síðustu viku október. Kvóti Vinnslustöðvarinnar í henni er 9.700 tonn, en hluti hans verður veiddur með norsk-íslensku síldinni.

Þá segir Sindri beðið með eftirvæntingu eftir upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun um nýafstaðinn loðnuleiðangur. Hann vonast til að fréttir berist í kringum 10. október. Viðtal Halldórs við Valdimar Gest má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.