Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Miðflokkurinn mælist næststærstur í Suðurkjördæmi og Samfylkingin gefur verulega eftir
Oddvitar flokkanna (sem sæti eiga á þingi) í Suðurkjördæmi. Mynd/samsett

Samfylkingin styrkir stöðu sína sem stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup fyrir RÚV. Flokkurinn mælist með 30,8% fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn fylgir á eftir með 24,7%.

Helsta breytingin frá ágústmælingunni er sú að fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um 2,1 prósentustig. Samfylkingin bætir hins vegar við sig 1,2 prósentustigum og Viðreisn 0,9 stigum.

Miðflokkurinn mælist með 15,0% fylgi, Viðreisn með 10,6%, Framsóknarflokkurinn 5,9%, Flokkur fólksins 4,0% og Vinstri græn 3,7%. Píratar mælast með 2,7% fylgi og Sósíalistaflokkur Íslands með 2,4%.

Fylgi flokkanna á landsvísu

Flokkur September Ágúst Breyting
Samfylkingin 30,8% 29,6% +1,2
Sjálfstæðisflokkurinn 24,7% 26,8% -2,1
Miðflokkurinn 15,0% 15,6% -0,6
Viðreisn 10,6% 9,7% +0,9
Framsóknarflokkurinn 5,9% 5,5% +0,4
Flokkur fólksins 4,0% 4,8% -0,8
Vinstri græn 3,7% 3,6% +0,1
Píratar 2,7% 1,9% +0,8
Sósíalistaflokkur Íslands 2,4% 2,4% 0,0

Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins, mælist 45%. Tæplega 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Samkvæmt útreikningi Gallup fengi Samfylkingin 23 þingmenn ef niðurstöður mælingarinnar yrðu úrslit kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 18 þingmenn, Miðflokkurinn ellefu, Viðreisn sjö og Framsóknarflokkurinn fjóra. Aðrir flokkar næðu ekki manni á þing.

Miðflokkurinn sækir verulega á í Suðurkjördæmi

Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi með 31,2% fylgi. Miðflokkurinn sækir hins vegar verulega í sig veðrið og mælist næststærstur með 24,7%.

Fylgi Miðflokksins eykst um tæp sjö prósentustig frá ágústmælingunni, þegar það mældist 17,8%.

Samfylkingin gefur að sama skapi mikið eftir í kjördæminu. Fylgi flokksins mælist nú 17,9%, samanborið við 25,5% í ágúst. Það er samdráttur um 7,6 prósentustig milli mánaða.

Framsóknarflokkurinn mælist með 8,2% fylgi, Flokkur fólksins 7,0% og Viðreisn 5,5%. Vinstri græn mælast með 2,8%, Sósíalistaflokkur Íslands 1,2% og Píratar 1,0%.

Fylgið í Suðurkjördæmi

Flokkur September Ágúst Breyting
Sjálfstæðisflokkurinn 31,2% 33,1% -1,9
Miðflokkurinn 24,7% 17,8% +6,9
Samfylkingin 17,9% 25,5% -7,6
Framsóknarflokkurinn 8,2% 8,0% +0,2
Flokkur fólksins 7,0% 5,4% +1,6
Viðreisn 5,5% 4,8% +0,7
Vinstri græn 2,8% 2,9% -0,1
Sósíalistaflokkur Íslands 1,2% 0,7% +0,5
Píratar 1,0% 1,5% -0,5

Miðað við kjördæmaúthlutun Gallup fengi Sjálfstæðisflokkurinn þrjá af níu kjördæmakjörnum þingmönnum Suðurkjördæmis og Miðflokkurinn sömuleiðis þrjá. Samfylkingin fengi tvo og Framsóknarflokkurinn einn.

Í ágústmælingunni fékk Sjálfstæðisflokkurinn fjóra kjördæmakjörna þingmenn í Suðurkjördæmi, Samfylkingin þrjá og Miðflokkurinn tvo.

Kjördæmaskiptingin byggist á færri svörum en landsmælingin og ber því að túlka breytingar milli mánaða með fyrirvara.

Könnun Gallup fyrir RÚV var gerð dagana 1. til 28. september. Heildarúrtakið var 10.485 manns og þátttökuhlutfallið 38,6%. Vikmörk á fylgi flokkanna á landsvísu eru á bilinu 0,5 til 1,6 prósentustig.

Nýjustu fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.