Má skipta liði?
Oddvitar flokkanna í Suðurkjördæmi. Ekki er ætlast til að þingmenn ráði við ölduhæðina, en kannski mætti ætlast til að þeir réðu við að skipta liði. Mynd/samsett.

Hvíslað er um það í Eyjum að þingmenn Suðurkjördæmis mættu gjarnan hugsa út fyrir boxið við skipulag kjördæmavikunnar. Eða að minnsta kosti út fyrir hópferðabílinn.

Enn á ný var fundi með bæjarstjórn Vestmannaeyja frestað vegna samgangna. Það er auðvitað snúið að koma heilu kjördæmisliði yfir sjóinn þegar ölduspáin hentar ekki dagskránni. En hver sagði að allir þyrftu að vera samferða?

Framsókn, Flokkur fólksins, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa hvert um sig tvo þingmenn í kjördæminu. Hefði annar þingmaður hvers flokks tekið stefnuna á Eyjar hefði hinn getað sinnt fundum á fastalandinu. Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, var þegar kominn til Eyja. Með þessu móti hefðu fimm þingmenn, helmingur þingmanna kjördæmisins, getað sest að fundarborðinu hér.

Það hefði nú varla verið fámennt. Og fimm flokkar við borðið.

Eyjamenn þekkja það að þurfa að breyta áætlunum, leggja fyrr af stað og fara lengri leiðina. Það er hluti af því að búa í eyjasamfélagi. Kjördæmavika gæti verið ágætt tækifæri fyrir þingmenn til að kynnast þeim veruleika af eigin raun.

Ekki er ætlast til að þingmenn ráði við ölduhæðina. En kannski mætti ætlast til að þeir réðu við að skipta liði.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.