Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE landa í Neskaupstað um þessar mundir. Bergey landaði um 60 tonnum í gær og Vestmannaey landar fullfermi í dag. Skipstjórarnir segja veðrið hafa verið hagstætt í veiðiferðunum en erfiðlega hafi gengið að finna ýsu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Stuttur túr hjá Bergey

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir skipið hafa verið kallað inn þar sem fisk hafi vantað í vinnslu Vísis í Grindavík.

„Þetta var stuttur túr. Við byrjuðum á að reyna við ýsu á Gerpisflakinu og fengum þar blöndu af ýsu og þorski. Síðan var keyrt í Litladýpið og þar voru tekin tvö þorskhol,“ segir Jón í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Veðrið hafi verið gott í túrnum en áður en haldið var til veiða hafi áhöfnin beðið af sér brælu í Neskaupstað.

Stöðug leit að ýsu

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, kveðst ánægður með veiðiferðina þótt ýsuveiðin hafi ekki gengið eins og vonast var til.

„Það eina sem skyggði á þennan túr var ýsuveiðin. Við reyndum við ýsu með of litlum árangri en fengum þó um 30 tonn af henni.“ Vestmannaey var að veiðum á Gerpisflaki, Skrúðsgrunni, Berufjarðarál og Breiðdalsgrunni og segir Egill Guðni leitina að ýsunni hafa verið stöðuga.

„Það var þokkalegasta veður í túrnum en nú er bræla framundan og ég reikna með að ekki verði farið út á ný fyrr en á föstudag vegna veðursins,“ segir Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.