Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Veiðiráðgjöf hækkar fyrir alla þrjá uppsjávarstofnana :: Makrílstofninn er þó enn lítill í sögulegu samhengi

Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, hefur birt veiðiráðgjöf fyrir norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna árið 2027. Samkvæmt frétt Hafrannsóknastofnunar hækkar ráðgjöfin fyrir allar þrjár tegundirnar.

Mesta hækkunin er í makríl. Ráðið leggur til að aflinn verði að hámarki 352.938 tonn, sem er 102 prósenta hækkun milli ára. Hrygningarstofninn er nú metinn yfir varúðarmörkum og ráðgjafarreglan heimilar því meira veiðiálag. Stofninn stækkar lítillega vegna bættrar nýliðunar og hærri meðalþyngda, en er enn lítill í sögulegu samhengi.

Stærri síldarárgangar skila aukningu

Ráðlagður afli norsk-íslenskrar síldar er 588.004 tonn, um tíu prósentum meiri en í ár. Árgangarnir frá 2021 og 2022 eru metnir yfir meðalstærð og eru að koma inn í veiðistofninn.

Í kolmunna er lagt til rúmlega milljón tonna afla, eða 1.064.191 tonn. Aukningin er 25 prósent og skýrist meðal annars af stærri metnum hrygningarstofni og sterkum árgangi frá 2024.

Afli í ár umfram ráðgjöf

Áætlaður heildarafli ársins 2026 er umfram ráðgjöf í öllum þremur stofnunum: rúmlega níu prósent í norsk-íslenskri síld, 128 prósent í makríl og 30 prósent í kolmunna.

Ráðgjöfin tekur til heildarafla allra veiðiþjóða og felur því ekki í sér ákvörðun um veiðiheimildir íslenskra skipa.

Nýjustu fréttir

Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.