5G væðing í Vestmannaeyjum?

Ljósleiðaramál í Vestmannaeyjum voru til umræðu á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Bæjarstjóri lagði fram minnisblað frá framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og deildarstjóra tölvudeildar um möguleika á því að leggja ljósleiðara að öllum heimilum og fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Í minnisblaðinu er raktir kostir ljósleiðaravæðingar, tæknileg útfærsla, kostnaður, fjármögnun, opinber aðstoð, þ.e. ríkisaðstoð), framkvæmd, rekstur og tímalína.

Jafnframt upplýsti bæjarstjóri um fund sinn og tveggja framkvæmdastjóra bæjarins með fulltrúum NOVA um svokallaða 5G væðingu, sem stóreflir gagnaflutning og hraða í Vestmannaeyjum. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að koma fyrir sendum á nokkrum stöðum í Vestmannaeyjum í framtíðinni og bjóða þannig stórbætta fjarskiptaaðstöðu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Fyrir eru tveir sendar á vegum fyrirtækisins sem eru ljósleiðaratengdir og til stendur að byrja á að nota, en leggja þarf ljósleiðara að nýjum sendum sem komið verður fyrir víðs vegar um eyjuna þegar netið verður þétt.

Tillaga frá bæjarfulltrúum H- og E-lista sem bæjarfulltrúar D-lista tóku undir.
Meirihluti E-og H-lista tekur vel í svokallaða 5G væðingu í Vestmannaeyjum og er
bæjarstjóra falið að fylgja eftir viðræðum við NOVA um fyrirkomulag og möguleika
á slíku umbótaverkefni sem flýtt getur bættum nettengingum í bænum.
Tillagan var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Tillaga frá bæjarfulltrúum H- og E-lista sem bæjarfulltrúar D-lista tóku undir.
Meirihluti E- og H-lista leggur til að umræðu og afgreiðslu um ljósleiðaravæðingu í
Vestmannaeyjum verði frestað til næsta bæjarstjórnarfundar, þann 11. júní nk., til
þess að gefa bæjarfulltrúum kost á að kynna sér betur efni minnisblaðsins áður en
ákvarðanir eru teknar um framhaldið.

Nýjustu fréttir

Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.