Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Efni úr rannsóknargryfju á Haugasvæðinu kannað vegna fyrirhugaðrar stórskipahafnar við Eiðið
Rannsóknargryfjan á Haugasvæðinu. Kannað er hvort þar megi vinna allt að 20 tonna grjót fyrir fyrirhugaða stórskipahöfn við Eiðið.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Nú er unnið að rannsóknum á jarðefni úr gryfju á Haugasvæðinu í Vestmannaeyjum til að kanna hvort þar sé að finna grjót sem hentar í fyrirhugaða stórskipahöfn við Eiðið. Takist að vinna nægilega stórt og gott grjót á staðnum gæti það sparað hundruð milljóna króna, að sögn Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar. Annars þyrfti að sækja stórgrýtið upp á land og flytja það sjóleiðina til Eyja.

„Við erum að rannsaka jarðefnið sem kemur úr gryfjunni á Haugasvæðinu. Tilgangurinn er að meta efnið og sjá hversu stórt grjót við getum unnið þarna. Vonandi náum við upp í 20 tonna grjót og þá þarf jafnframt að kanna hvort það henti í fyrirhugaða stórskipahöfn við Eiðið,“ segir Brynjar.

Mikið er í húfi enda stórgrýti mikilvægur þáttur í fyrirhugaðri uppbyggingu hafnarinnar. „Ef þetta tekst getum við sparað hundruð milljóna króna. Annars þurfum við að sækja grjótið upp á land og flytja það til Eyja,“ segir Brynjar.

Rannsóknirnar á Haugasvæðinu eru liður í undirbúningi mögulegrar efnistöku. Markmiðið er að afla betri upplýsinga um gæði bergsins og draga úr óvissu um hversu mikið og hversu stórt grjót verði hægt að vinna þar fyrir stórskipakant og landfyllingu norðan við Eiðið.

Framkvæmdaleyfi gerir ráð fyrir um 15 rannsóknarborholum, um tíu metra djúpum, auk rannsóknarskurðar sem getur orðið allt að 50 metra langur, 10 til 15 metra breiður og allt að tíu metra djúpur. Áætlað heildarmagn efnis úr rannsóknunum er um 15.000 rúmmetrar.

Framkvæmda- og hafnarráð samþykkti í apríl að taka tilboði Þjótanda í fyrstu tvo áfanga rannsóknanna, rannsóknarborun og jarðvinnu. Tilboðið nam tæpum 35,7 milljónum króna með virðisaukaskatti. Vegagerðin hefur staðfest 60 prósenta þátttöku í kostnaðinum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Rannsóknirnar tengjast málum framkvæmda- og hafnarráðs nr. 202310093, Landfylling Eiði, og 202604001, Umhverfismat vegna stórskipakants og grjótleitar. Niðurstöðurnar geta ráðið miklu um framhaldið. Reynist grjótið á Haugasvæðinu hentugt gæti stór hluti þess hráefnis sem þarf í eina stærstu framtíðarframkvæmd Vestmannaeyjahafnar verið að finna í Eyjum sjálfum.

 

Nýjustu fréttir

Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Gabríel Ari gerir tveggja ára samning við ÍBV
Skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við ferðaþjónustuna
Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Stór og spennandi tímamót hjá yngstu nemendunum 
Lítil kraftur í veiðunum en skipin lönduðu fullfermi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.