Stutt stopp á miðunum

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE héldu báðir til veiða frá heimahöfn í Vestmannaeyjum sl. föstudag. Bæði skip lönduðu síðan fullfermi í gær eftir að hafa verið rúman sólarhring að veiðum. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Skipstjórarnir láta vel af aflabrögðum en segja að aflinn mætti vera blandaðri en raunin er á. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að aflinn sé mest ýsa. „Það er allt fullt af ýsu og aflinn er mestmegnis ýsa. Dálítill þorskur kemur þó með. Það er alveg glimrandi veiði og þetta er fallegur fiskur sem fæst. Við vorum að veiðum á Pétursey og Vík en þar höfum við mest verið upp á síðkastið,“ segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að það sé nánast vandræðalega mikið af ýsu á ferðinni. „Við vorum á Pétursey og Vík og aflinn að mestu ýsa. Aflinn þyrfti að vera blandaðri. Það er ekki hægt að kvarta undan veiðinni, það var mokveiði og það liggur vel á strákunum um borð. Á þessum slóðum er mikið af loðnu. Þetta er aðallega kall sem lagstur er á botninn,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.