Knattspyrnufélagið Valur hefur sendi í morgun frá sér yfirlýsingu vegna eftirmála leiks Vals og ÍBV í meistaraflokki kvenna þann 25. febrúar síðastliðinn rúmum mánuði eftir atvikið. En þjálfari ÍBV, Sigurður Bragason, var úrskurðaður í tveggja leikja bann vegna óíþróttamannslegrar hegðunar eftir leikinn. Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér að neðan.
Yfirlýsing.
Knattspyrnufélagið Valur vill koma eftirfarandi á framfæri vegna eftirmála leiks Vals og ÍBV í meistaraflokki kvenna í handknattleik 25. febrúar síðastliðinn.
Valur fordæmir þá ósæmilegu og niðrandi hegðun sem þjálfari ÍBV sýndi af sér að leik loknum. Var hegðunin með þeim hætti að framkvæmdastjóri HSÍ taldi rétt að vísa málinu til aganefndar HSÍ til umfjöllunar.
Ágreiningur hefur verið með Val og ÍBV um þau atvik sem urðu í lok leiksins. Niðurstaða aganefndar var sú að ekki væru næg sönnunargögn til staðar til að úrskurða um hvort þjálfari ÍBV hafi slegið starfsmann Valsliðsins tvívegis í rassinn eða hvort um stroku yfir bakið og vinalegt klapp tvívegis á mjöð/mjaðmakúlu hafi verið að ræða eins og ÍBV hélt fram í sinni greinargerð. Að mati Vals gildir þetta þó einu enda felur hvort tveggja í sér niðurlægjandi og ósæmilega hegðun. Slík framkoma á ekki að líðast. Það hefur því valdið Val miklum vonbrigðum að ÍBV skuli ekki hafa tekið ábyrgð á og afstöðu gegn háttseminni í opinberri umræðu um málið.
Knattspyrnufélagið Valur telur aftur á móti að nú sé mál að linni hvað framangreindan ágreining varðar og hyggst ekki áfrýja niðurstöðu aganefndar HSÍ heldur horfa fram á veginn. Félagið þakkar þann stuðning sem önnur íþróttafélög hafa sýnt í þessu máli. Félagið vill að stigið verði fastar til jarðar ef sambærileg mál koma upp svo hægt sé að útrýma hegðun sem þessari úr hreyfingunni fyrir fullt og allt.
Knattspyrnufélagið Valur bindur vonir við að umfjöllun og samstaða annarra íþróttafélaga í þessu máli hafi góð áhrif til framtíðar. Einnig að hún komi í veg fyrir að sambærileg mál endurtaki sig innan íþróttahreyfingarinnar.
Látum kappið aldrei bera fegurðina ofurliði og stefnum ávallt hærra.
Reykjavík, 24. mars 2023
Knattspyrnufélagið Valur
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.