Vestmannaeyjabær sér um félagsstarf fyrir eldri borgara að meðaltali tvisvar sinnum í mánuði og hefur verið mikið um að vera upp á síðkastið.
Eftir því sem fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar hefur þátttaka verið með ágætis móti. Það sem hefur verið að gerast er að við fengum fræðslu um netglæpi og hvernig koma megi í veg fyrir þá frá samfélagslöggunum Símoni Geir og Sóleyju. Einnig fór Ólafur Lárusson yfir hvernig nota á hjartastuðtæki við hjartastopp. Hjartastuðtæki er meðal annars staðsett í Kviku. Á einum viðburðinum var boðið upp á vöfflukaffi og spjall. Þá fengum við einnig Jarl vin okkar í heimsókn og spilaði hann og söng með okkur eins og honum einum er lagið. Sonja iðjuþjálfi kom til okkar og kynnti vinnu sína hjá Vestmannaeyjabæ og hvernig iðjuþjálfun og hjálpartæki geta nýst fólki til að það geti búið sem lengst heima og við sem best lífsgæði. Við fengum síðan boð frá Þóru Gísladóttir á Mjaldrasafnið. Það var gaman að sjá allt sem er í gangi á safninu. Það var líka gaman að sjá allt umstangið í kringum mjaldrana sem sýndu okkur marga flotta takta. Anna Hulda sjúkraþjálfari og Davíð frá Allra heilsa komu á einn viðburðinn og voru með skemmtilega kynningu á Allra heilsa sjúkraþjálfun og á vörunum sem þau eru að selja. Þau komu með ýmsar hugmyndir um það hvað fólk getur gert til að láta sér líða betur með að hjálpa sér sjálft. Næsti viðburður verður mánudaginn 3. apríl kl 14:00 í Kviku, því þá ætlum við að bjóða öllum eldri borgurum á páskabingó.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.