Vegur að Viðlagafjöru varasamur - Bílvelta

Lögreglan vill góðfúslega benda á erfiðar aksturs aðstæður á Eldfellsvegi við Viðlagafjöru. Síðastliðna nótt varð umferðarslys á Eldfellsvegi við Viðlagafjöru þar sem bifreið fór eina veltu, engin slys urðu á fólki. Eins og margir vita er jarðvegsvinna fyrir væntanlegt fiskeldi hafin á staðnum og eru aðstæður til aksturs orðnar erfiðari og þá sérstaklega þegar byrjar að rökkva en engin lýsing er á staðnum.

Eldfellsvegur hefur verið klofinn að hluta vegna framkvæmdanna og er ekki lengur hægt að aka hringinn í kringum Kirkjubæjarhraun heldur er einungis nú hægt að aka niður að Viðlagafjöru. Lögregla vill því biðla til ökumanna að vera ekki að aka á ofangreindum stað að óþörfu eftir myrkur en með mikilli gát ef þörf er að fara þangað.

Góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr.

Tölvumynd af landeldisstöð sem senn rís í Viðlagafjöru.

 

Nýjustu fréttir

Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.