Hefur keypt bílaréttinga- og sprautuverkstæði

�?Ástæðan fyrir kaupunum á Bifreiðaverkstæði Árna Gíslasonar er einföld, Við stefnum að því að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu í öllum þáttum þjónustuferlisins,�? segir Magnús Kristinsson, eigandi Toyota á Íslandi aðspurður.

�?Bifreiðaverkstæði Árna Gíslasonar hefur verið starfrækt sem fjölskyldufyrirtæki með myndarbrag í yfir 50 ár og með kaupum okkar á því skapast gríðarlega spennandi sóknarfæri í átt að því takmarki okkar að framfylgja þjónustustigi gagnvart Toyotaeigendum sem uppfyllir og fer jafnvel fram úr þeim væntingum sem þegar eru til okkar gerðar.
Kaupin eru jafnframt rökrétt framhald af þeirri ákvörðun sem við tókum á síðasta ári þegar við keyptum Bifreiðaverkstæði Kópavogs, en þá voru formerki kaupanna þau sömu �? að auka þá þjónustu sem við veitum nú þegar í dag. Með auknum fjölda Toyota bifreiða í umferð er aukin þörf fyrir þjónustu og við leggjum mikið upp úr því að tryggja Toyotaeigendum sem besta þjónustu,�? sagði Magnús.

Nýjustu fréttir

Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.