Fjölbreytt dagskrá sjómannadagsins

Klukkan tíu í dag, sjómannadaginn verða fánar dregnir að húni. Klukkan 13.00 er sjómannamessa í Landakirkju þar sem séra Guðmundur Örn predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum Guðni Hjálmarsson stjórnar athöfninni.

Milli klukkan 14.00 og 17.00 er hið víðfræga  Eykindilskaffi í Akóges og klukkan 15.00 hefst hátíðardagskrá á Stakkó þar sem Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Aldnir sægarpar heiðraðir og því stjórnar Valmundur Valmundsson.

Karlakór Vestmannaeyja flytur nokkur lög undir stjórn Matthíasar Harðarsonar. Ræðumaður Sjómannadagsins er Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna. Verðlaunaafhending fyrir keppnir helgarinnar. Fimleikafélagið Rán sýnir og hoppukastalar og popp í boði fyrir yngsta fólkið.

Mynd – Fjölmenni var við hátíðarhöldin á Stakkó í fyrra.

 

Nýjustu fréttir

Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.