Næsti Aglow fundur verður miðvikudagskvöldið 1. mars kl. 19.30 í betri stofu safnaðarheimils Landakirkju. Í janúar og febrúar ræddum við um ýmislegt í tengslum við að um þessar mundir eru fimmtíu ár frá eldgosinu 1973. Margar tilfinningar komu upp á yfirborðið. Næsta miðvikudagskvöld ætlum við að fjalla um hvað við berum með okkur frá fyrri kynslóðum. Við líkjumst foreldrum okkar í útliti en við erfum einnig margt innra með okkur. Því getur verið ágætt að skoða fjölskyldusöguna og með meiri þekkingu getum við rofið þá vítahringi sem við erum flæktar í. Fyrir stuttu talaði Sr.Hildur Eir Bolladóttir um þetta efni í útvarpinu og er hægt að hlusta á netinu; RUV / útvarp / dagskrá / þri. 14. febrúar kl. 6.45 / Morgunbæn og orð dagsins. Vera Björk Einardóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir munu segja nokkur orð um efnið en þær hafa báðar lokið sálgæslunámi. Þetta efni var til umfjöllunar þar. Við munum ræða um þessi mál og verður tækifæri fyrir spurningar, vangveltur og umræður. Alþjóðlegur bænadagur kvenna er fyrsta föstudag í mars og verður samkoma í húsi Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut í Reykjavík föstudaginn 3. mars kl. 18.00. Efni bænadgsins kemur frá konum í Taívan og ætlum við í Eyjum að fara yfir efni bænadagsins á Aglow fundi 3. maí. Eins og hindin þráir lindir lifandi vatns, þráir sál mín þig, ó Guð minn. Sál mína þyrstir eftir Guði, lifandi Guði…..Sálm 42.2
Við hlökkum til að skjá ykkur sem flestar og allar konur velkomnar.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.