Þetta er stórt skref fram á við fyrir félagið.
Í dag var ný hrognastöð Ísfélagsins tekin í notkun þegar hrogn úr afla Suðureyjar VE fóru í gegnum stöðina. Þar með er hafin nýr kafli í sögu Ísfélagsins sem hefur verið leiðandi í vinnslu á loðnu til manneldis í áratugi. „Hér vorum við að byggja til framtíðar, bæði hús og vinnslu og nýtum bestu mögulegu tækni sem í boði er. Nú tekur við þjálfun starfsfólks á línuna og fengum við hæfilega lítinn skammt af hrognaloðnu til að fínpússa eitt og annað í húsinu og línunni. Við erum bjartsýn á komandi hrognavertíð með nýrri stöð,“ sagði Björn Brimar Hákonarson, vinnslustjóri Ísfélagsins við Eyjafréttir.
Segja má að framkvæmdin sé í þremur hlutum. Fyrst voru reistir 4 x 500 rúmmetra ryðfríir hráefnistankar. Næsta stig var að byggja útveggi hrognahússins utan við gömlu hrognavinnsluna við FES-ið. Lokastigið sem var sl. vor þegar gamla vinnslan var rifin og vinnu lokið við nýja húsið síðasta sumar. Þá hófust framkvæmdir innandyra við uppsetningu vinnslulínu og lagnavinna. „Segja má að framkvæmdir hafi staðið fram að vertíð núna og síðustu iðnaðarmennirnir voru að bera verkfærin út í þessari viku,“ sagði Björn Brimar.
Húsið er á þremur hæðum. Á efstu hæðinni eru geymslur og tæknirými. Á annarri hæð er aðstaða fyrir starfsfólk, kaffistofa og stakkageymsla og á neðslu hæðinni eru forstofa, skáparými og skóskiptiaðstaða. Vinnslusalurinn sjálfur er eitt rými upp í þak með millilofti úr stáli til að vinnuaðstaða sé í þægilegri vinnuhæð. Öll aðstaða fyrir starfsfólk til vinnu er hin besta.
„Vinnslulínan sjálf er samsett úr sex skurðalínum með snúningssíum og átta hreinsilínum og hver lína er samsett úr nokkrum stigum hreinsunar. „Mikið vatn er notað í vinnsluna sem við fáum úr okkar eigin borholum. Allt affall frá hrognavinnslunni fer í gegnum fullkomna hreinsistöð sem byggð var fyrir nokkrum árum. Frá hrognavinnslunni liggur lögn, um einn km að frystihúsinu við Friðarhöfn þar sem síðasta skref vinnslunnar fer fram, lokahreinsun og hin raunverulega vinnsla fyrir frystingu.
Þetta er stórt skref fram á við fyrir Ísfélagið enda engu til sparað að ná sem mestum verðmætum úr loðnuhrognunum sem ein verðmætasta afurð sem frá okkur fer. Japanskir kaupendur gera miklar kröfur og nýja stöðin auðveldar okkur að standast þær. Sjálf gerum við miklar kröfur og þar er hreinlæti efst á blaði,“ sagði Björn Brimar að endingu.
Mynd:
Björn Brimar við kerið þar sem hrognin fara í eftir að hafa farið í gegnum kerfi stöðvarinnar.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst