Það skorti ekki vandaða viðburði síðastiliðinn þriðjudag og höfðu gestir um nóg úr að velja úr dagskrá goslokahátíðar.
Þeir Erlendur Bogason kafari og Örn Hilmisson sýndu lifandi myndir og ljósmyndir í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Það var ekki það eina sem var á boðstólum því Gleðigjafarnir seldu vöfflur á staðnum.
Leikhópurinn Lotta sýndi Gilitrutt á Stakkagerðistúni fyrir fjölda barna.
Meðal þess sem Erlendur er með til sýnis eru tveir nýbúar á Íslandi sem fundust við Vestmannaeyjar árið 2022. Því miður hafa þeir ekkert nafn svo leitað er til sýningargesta eftir hugmyndum að góðu nafni á ígulkerið og krossfiskinn. Sýning Erlendar og Arnar er opin út goslokavikuna.
Gerður Guðríður Sigurðardóttir, eða GZERO, opnaði sýningu sína í Einarsstofu á Safnhúsi. Hún sýndi fjölda málverka sem eiga tilvísun í Vestmannaeyjar og Heimaeyjargosið 1973. Sjálf bjó hún á Gerðisbraut 10 með fjölskyldu sinni þegar gosið hófst. Þá gekk hún með Bjarka, son hennar og Guðna Ólafssonar, eiginmanns hennar sem er látinn. Gerðisbraut 10 var grafin upp og er miðpunktur Eldheima.
Upplýsingaskilti um fuglamerkingar Óskars í Höfðanum var afhjúpað á Stórhöfða. Marinó Sigursteinsson pípulagningarmeistari lét gera skiltið og setja upp. Sömuleiðis lét hann gera annað skilti um Flakkarann sem var afhjúpað í gær, miðvikudag.
Berglind Sigmarsdóttir opnaði sýningu sína „Listin í leikföngunum” að Vestmannabraut 32. Verkin eru gerð hinum ýmsu leikföngum sem hún hefur sankað að sér eins og dúkkur, kubbar og perlur.
Þá opnaði Gíslína Dögg Bjarkardóttir myndlistasýningu sína „Kokteill” á Slippnum við góðar undirtektir.
Kvöldinu lauk með dagskrá um Oddgeir Kristjánsson í Sagnheimum þar sem fullt var út að dyrum.
Myndir frá Erlendi og Erni:



Myndir frá leikhópi Lottu á Stakkó:


Myndir frá sýningu GZERO:



Myndir frá sýningu Berglindar:



Myndir frá Stórhöfða: Ljósmyndir frá Adda í London.











Myndir frá Sýningu Gíslínu Daggar:



Myndir frá Sagnheimum: Ljósmyndir frá Adda í London.






















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.