Hátíðarhöld í Vestmannaeyjum á sjómannadag 3. júní 1973 voru látlaus enda eldgosið enn í gangi og allt á kafi í vikri. Sigmar Þór Sveinbjörnsson, sem þá var gjaldkeri Sjómannadagsráðs, segir að Jóhannes Kristinsson formaður ráðsins hafi verið mjög ákveðinn í að athöfnin við minnisvarðann um hrapaða og drukknaða félli ekki niður. Tvær leiguflugvélar flugu með Jóhannes, Einar J. Gíslason (föður undirritaðs), systurnar Hrefnu og Ingibjörgu Guðnadætur, sem sungu við athöfnina, og fleiri til Eyja. Þess má geta Hrefna er móðir stórsöngvarans Páls Rósinkranz og Ingibjörg systir hennar bjó hér eftir gos þegar hún og þáverandi maður hennar, Gunnar Þorsteinsson, ráku verslunina Virkni við Strandveg. Ingibjörg var þá í Samkór Vestmannaeyja og söng einsöng með kórnum.
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja kom ekki út 1973 en árið eftir kom út blað fyrir árin 1973 og 1974. Þar segir um dagskrá sjómannadagsins 1973: „Af eðlilegum orsökum voru ekki hátíðahöld í Vestmannaeyjum á sjómannadaginn vorið 1973. Eldgosið var þá enn í gangi, og aska og vikur lá yfir mikinn hluta bæjarins.
Að tilhlutan Sjómannadagsráðs var vikur hreinsaður frá minnisvarða drukknaðra og hrapaðra og var lagður blómsveigur að minnisvarðanum.”
Greinina má lesa í heild sinni í nýjasta tölublaði Eyjafrétta (14. tbl.).




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.