Siggi Björns var síðast með tónleika á Stokkseyri í október s.l. á frábærum tónleikum með sinni norrænu vísnasveit sem nefnd er Freyja. Hann hefur oft haldið tónleika á Stokkseyri, einn eða með öðrum, og á tryggan aðdáendahóp á svæðinu.
Sérstakur gestur með Sigga Björns nú verður Lýður Árnason fjöllistamaður á Flateyri sem verður með létta og sérlega skemmtilega kosningasveiflu sem sló í gegn á Vestfjörðum nýlega. Lýður er fjölhæfur listamaður og hefur gert nokkrar kvikmyndir svo sem; Í faðmi hafsins, Jólamessan, Ísmaðurinn og Skuggabörn sem fengu Eddu-verðlaun í haust. �?á hefur hann gefið út marga hljómdiska ásamt hljómsveitum sínum og hélt eftirminnilega útgáfutónleika með hljómsveitinni Gögl á Stokkseyri fyrir nokkrum árum.
Sunnlendingar! missið ekki af þessum tónleikum og kosningasveiflu sem er nýtt innlegg í menningarflóruna hér.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.