Stórmyndirnar tvær Barbie og Oppenheimer voru frumsýndar hér á landi fyrir helgi. Kvikmyndaparið þénaði 35,7 milljónir króna hérlendis á þremur dögum en alls nam miðasala tæpum 43 milljónum króna sl. helgi sem gerir hana að tekjuhæstu kvikmyndahelgi sögunnar hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndariðnaði.
Það hefur verið mikil eftirvænting fyrir myndunum tveimur en gerð þeirra kostaði yfir 100 milljónir bandaríkjadala hver. Á samfélagsmiðlum hefur verið mikil áskorun að horfa á myndirnar samdægurs og er þá talað um fyrirbærið „Barbenheimer”.
Eyjamönnum gefst möguleiki að fara á myndirnar í röð nk. sunnudag en Barbie verður sýnd klukkan þrjú og Oppenheimer sama dag klukkan sjö.
Um 240 manns í bíó um helgina
„Um helgina komu 176 manns á Barbie á tveimur sýningum sem er ansi gott. Færri komu á Oppenheimer eða aðeins 35,” segir Ingveldur Theodórsdóttir, frá Leikfélagi Vestmanneyja, en félagið sér um rekstur Eyjabíós. Þá voru 30 manns sem fóru á Mission: Impossible – Dead Reckoning með Tom Cruise.
„Það að fá um 240 manns í bíó um helgina er ansi gott hér í Eyjum. En það má segja að ef fólk vill hafa þessa þjónustu í Eyjum þá verður það að mæta. Við reynum að gera okkar besta og vonum að fólk sé ánægt með það” segir Ingveldur.
Þeir kvikmyndahúsagestir sem mættu bleikklæddir á Barbie fengu frítt popp og sleikjó og var miðasalan skreytt hátt og lágt.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.