Tveir rafstrengir og vatnsleiðsla árið 2025?

„Við Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Gísli Stefánsson bæjarfulltrúi, höfundar skýrslunnar ákváðum strax að fylgja ábendingum eftir þannig að við afhendingu lægju fyrir ákvarðanir stofnana sem um málin fjalla. Það hefur að stórum hluta tekist,“ sagði Árni Sigfússon formaður starfshóps um eflingu samfélagsins í Vestmannaeyjum sem skilaði af sér mánudaginn 9. október sl. 

„Samtal okkar við forystumenn Landsnets, um lagningu tveggja rafstrengja þýðir að þeir eru komnir á framkvæmdaborðið.  Það var alls ekki sjálfgefin lausn að hætta að vandræðast með bilaðan streng, heldur ákveða að leggja tvo nýja strengi 2025. Hið sama á við um nýja vatnsleiðslu til Eyja. Þar þarf að styðja HS veitur í að fá fram breytingar svo þau geti svarað fyrir þá fjárfestingu eigenda sinna að leggja í svo mikla fjárfestingu.  

Vatn til Eyja er almannavarnarmál.  Þess vegna þarf þingið að stíga inn í og tryggja að framkvæmdaaðilanum sé mögulegt að gera þetta. Eyjar eiga ekki að þurfa  að greiða óeðlilega hátt gjald fyrir búsetu sína, rétt eins og  varnir á snjóflóðasvæðum eru greidd úr sameiginlegum sjóðum. Þetta er mál sem þingmenn Suðurkjördæmis þurfa að berjast fyrir,“ sagði Árni.   

Hann sagði víða verið að gera góða hluti í fullvinnslu sjávarafurða. „Hugsjónamaðurinn Hallgrímur Steinsson hjá Laxey, fjárfestar og samstarfsmenn eru verðlaunadæmi um allt þetta. Ekkert sveitarfélag hefur enn tekið af skarið með að lýsa yfir að það stefni að grænni framtíð sem samfélag. Það væri því sterk yfirlýsing.“  

„Guðlaugur Þór skildi ekki fyrst hvers vegna hann sem umhverfisráðherra ætti að fjalla um jarðgöng til Eyja. Við bentum honum á þau sem lagnakjallara fyrir alla innviðina sem hluta umhverfis- og orkumála, sem yrði auðvelt að viðhalda og hann samþykkti.“  

Á léttari nótunum 

Árni segir ráðherra hafa mikinn áhuga á orkuframleiðslu og eigin orkulausnum í Eyjum. „Það eru ábendingar um það í skýrslunni. Í tilefni nýafstaðinnar Bjargveiðimannahátíðar langaði mig þó, Bjarnareyingnum, að stríða nágrönnum okkar og leggja til að vindmyllur verði settar upp í Elliðaey enda fátt þar um lunda.  Írísi og Gísla þótti það grín alls ekki við hæfi, ekki mér heldur. Fyrir þessa húmorstilraun fékk ég þó birta mynd af Bjarnarey á forsíðu skýrslunnar. Forseti bæjarstjórnar, Palli Magg bróðir í Bjarnarey  var ánægður með hana. Margt meira um þetta verkefni að segja síðar. En í alvöru, ég vona að efni skýrslunnar marki sterk og jákvæð spor framundan. Við vorum heppin að hafa Írisi og Gísla um borð og njóta ábendinga frá á fjórða tug sérfróðra,“ sagði Árni að endingu. 

 

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.