Síðustu veiðiferðum Bergs VE og Vestmananeyjar VE fyrir jólastopp er lokið. Landaði Bergur 62 tonnum í Vestmannaeyjum í vikunni og Vestmannaey 60 tonnum þar í gærmorgun.
Mest var af þorski í afla Bergs og segir Jón Valgeirsson skipstjóri í færslu á vef Síldarvinnslunnar að í túrnum hafi verið norðaustan fræsingur. „Við byrjuðum út af Þorlákshöfn og þar fengum við aðeins af ýsu, en færðum okkur síðan austur á Ingólfshöfða og kláruðum þar. Nú er framundan pása fram yfir áramót og það eru allir glaðir og sælir með það.“
„Við byrjuðum á Glettingi en færðum okkur svo suður á Gerpisflak og í Reyðarfjarðardýpið. Þarna vorum við í blíðuveðri allan tímann en það var hins vegar bræla fyrir sunnan okkur. Nú tekur við góð pása en það verður ekki farið út á ný fyrr en á nýju ári,“ segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, um síðasta túr togarans.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.