Þjóðhátíð 2016.....
2. ágúst, 2016

……..verður fyrst og fremst minnst fyrir frábært veður, mikið af fólki, mikið gaman, ágætis dagskrá með sínum vanalegu hápunktum á hverju kvöldi. Fyrir mig persónulega hins vegar, verður þetta lang lakasta hátíðin í mínu minni, eðlilega, eftir að hafa mætt í 40 ár í röð þá mætti ég ekki núna.

Svolítið skrýtin tilfinning, en það vakti þó athygli mína að ég fann ekki fyrir neinum sérstökum söknuði eða annars slíks, enda búin að hafa það sterkt á tilfinninguni síðustu árin að þetta væri svona frekar eins og skyldumæting, þó að sjálfsögðu væri alltaf gaman.

Ég ákvað hins vegar að nota þessa Þjóðhátíðarvikuna til þess að koma mér í betra líkamlegt ástand, eftir erfiða aðgerð sem ég fór í í vor. Á göngum mínum að undanförnu, þá hefur eins og gengur og gerist mikið verið um spjall og kannski sérstaklega lent oft á spjalli við fólk sem ætlaði ekki í dalinn.

Fljótlega fór ég að fiska eftir því, hversvegna Eyjamenn eru ekki að mæta í dalinn. Kom þá í ljós að nánast allir nefndu sama atriðið, þ.e.a.s. merkingu tjaldstæða. Rifjaðist þá upp fyrir mér, færsla sem ég setti á fb á miðvikudagskvöldinu 2015 sen var nokkurn veginn svona:

Sem betur fer er leiðinlegasta hluta Þjóðhátíðarinnar í ár lokið, merking stæða, en í ár var þetta óvenju slæmt, vegna þess að börnin mín sem höfðu hlaupið og náð ágætum stað og voru hálfnuð við að merkja fyrir tjaldstæði, urðu fyrir hálfgerðri áras af fullorðnum manni, sem sagðist eiga þenna blett vegna þess að hann hafði alltaf tjaldað þarna áður. Þegar börnin mín neituðu að víkja, þá tók þessi aðili sig til og reif upp hælana hjá þeim og henti þeim í burtu. Frúin var þá mætt á svæðið og ákvað að fara eitthvað annað, vegna þess að hún vildi ekki tjalda við hliðina á svona liði.

Það hefur rifjast upp fyrir mér að undanförnu nokkur leiðinleg atvik af svipuðum toga í gegnum árin, en mig óraði ekki fyrir því, sem ég hef fengið að heyra í nokkrum samtölum að undanförnu, að það sé til töluvert af Eyjamönnum sem hafa jafnvel í sumum tilvikum ekki mætt árum saman á Þjóðhátíð og það bara út af þessu litla atriði.

Einnig hef ég heyrt af fólki sem var búið að ákveða að mæta ekki í ár, að málið hafi reddast vegna þess að það hafði frétt af einhverjum ættingja, sem starfar sem sjálfboðaliði í undirbúningi að Þjóðhátíð og á þannig rétt á ákveðnu forskoti í merkingu að stæðum og málinu þannig verið reddað.

En á þetta að vera svona? Ég skil að mörgu leyti afstöðu ÍBV um að láta þetta afskiptalaust, enda margt verið reynt í gegnum árin, en hvað væri hægt að gera? Margir hafa nefnt að skemmtilegt hefði verið að setja þetta upp í einhvers konar bingo þar sem númeruð stæði væru einfaldlega dregin, en ekki er ég viss um að fólk sem telur að Þjóðhátíðin hjá sér sé bara ónýt, ef það fær ekki að tjalda á blettinum sínum myndi sætta sig við það. En þá er aftur spurning um hvort ekki væri hægt að fela einhverri deild innan ÍBV að nota þetta sem fjáröflun með því einfaldlega að bjóða upp stæðin, þannig að þeir sem VERÐA að fá að tjalda á blettinum sínum gætu þá einfaldlega boðið í og keypt sér sitt stæði eitt ár í senn.

Þannig gætu fjölskyldur og ættir tekið sig saman um að bjóða í ákveðnar raðir á ákveðnum götum, í staðinn fyrir að þurfa að standa í einhverjum leiðindum, eins og t.d. í ár, en mér er sagt að í ár hafi brotist út slagsmál við eina götuna. Þeir sem ekki hefðu áhuga á að kaupa sér stæði gætu síðan hlaupið á tilsettum tíma í þau stæði sem eftir væru, en ég held að það sé í raun og veru ekki mikið mál að útfæra þetta, en það hlýtur að vera markmið okkar allra að fá sem flesta Eyjamenn á Þjóðhátíð Vestmannaeyja og skora ég hér með á ÍBV að skoða nú þessi mál í alvöru og lýsi mig um leið reiðubúinn að taka þátt í að útfæra þetta nánar,

Óska annars ÍBV til hamingju með vel heppnaða Þjóðhátíð.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst