Upphlaupið í janúar

Í janúar sl. ákvað Vegagerðin að nú skildi dýpka Landeyjahöfn. Ekki dugði minna til en þrjú dýpkunarskip. Fyrst fór Dísan, en ekki vildi betur til en svo að skipið varð fyrir tjóni á svæðinu og þurfti því frá að hverfa. Í kjölfarið var bæði Perlunni og Sóley stefnt í höfnina til að dýpka.

En spurningin er – hvers vegna þessi hamagangur í janúar?

Var einhver að reikna með því að siglt yrði í Landeyjahöfn í janúar eða febrúar?

Nú, tæpum tveimur mánuðum síðar – er ekki enn farið að sigla í Landeyjahöfn og raunar ekki verið dýpkað þar, síðan í janúar.

Nú spyrja margir, hvað þetta upphlaup í janúar kostaði – og hvort þessir fjármunir hefðu ekki nýst betur í t.d niðurgreiðslu farseðla milli lands og Eyja, sem kosta jú orðið sitt?

 

Tengd frétt frá 2012.

 

Nýjustu fréttir

Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.