Landeyjahöfn, staðan í dag
21. september, 2014

Það er farið að hausta hressilega og um leið byrjar vandræðagangurinn í kring um Landeyjahöfn. Engar framkvæmdir eru hafnar við að lagfæra höfnina og í ný tilkomnu fjárlagafrumvarpi Ríkisstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir krónu í nýtt skip né lagfæringar á höfninni.

Nýjasta kjaftasagan sem ég heyrði fyrir nokkru síðan gengur út á það, að það sé amk. 6-8 ár í nýja ferju. Ástæðan sé sú, að nú sé verið að gera töluverðar breytingar á Herjólfi til þess að gera hann stefnu fastari í siglingum inn og út úr Landeyjahöfn og að þær breytingar séu ekki fjármagnaðar með það í huga að duga aðeins í ca. 2 ár. Ekki veit ég hvort þetta sé rétt, en óneytanlega hefur það vakið athygli mína, að allir þeir sem ég hef rætt þetta við telja að það séu amk. 4 ár í nýja ferju og merkilegt nokkuð, almennt virðast Eyjamenn vera nokkuð sáttir við það að ekki sé verið að setja fjármagn í nýja ferju og vilja miklu frekar að sett sé alvöru fjármagn í langfæringar á höfninni. Þessu er ég nokkuð sammála, en að mínu mati þarf þó fyrst að fá skýrari svör við þeirri spurningu sem óneytanlega vaknaði á borgarafundi Árna Johnsen í vor, en þar fullyrti Árni það að Sigurður Ás Grétarsson hjá Siglingamálastofnun hefði sagt við sig í samtali, að hann væri kominn á þá skoðun, að alveg sama hvað gert væri fyrir Landeyjahöfn þá yrði höfnin aldrei heilsárshöfn. Ég er reyndar sammála þessari skoðun, en er að sjálfsögðu ekki tilbúinn að gefast upp, en maður hlýtur samt að velta því fyrir sér hvort að þessi “skoðun” Sigurðar sé kannski ástæðan fyrir því að ekki sé gert ráð fyrir neinum fjárframlögum frá ríkinu í Landeyjahöfn?

Sumarið var annars nokkuð gott þó að hann lægi full mikið í suðlægum áttum, þá duttu ekki út nema 2-3 dagar í allt sumar, ef ég man rétt. Tíðin framundan er hins vegar, út frá trillusjónarmiðum, óspennandi og veturinn algjörlega óskrifað blað, en vonandi fáum við bara mildan vetur.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.