Að laða fram það besta í fólki
8. september, 2014

Ég er 39 ára gömul, fráskilin þriggja barna móðir. Ég er 61,5 kg, er 165 sm á hæð og nota skó númer 40. Ég er upprunalega með músaskítsbrúnt hár þó ég hafi ekki séð í þann háralit í mörg, mörg ár. Mögulega hafa gráu hárin vinningin en hef í raun og veru engan áhuga á að komast að því.  En af hverju er ég að opinbera allar þessar mjög svo gagnslausu upplýsingar? Eftir skilnaðinn minn fyrir tveimur árum hef ég haft nánast þráhyggjukenndan áhuga á öllu sem viðkemur samböndum og samskiptum því mér fannst ég bara verða  að komast að því hvað  það er sem gerir góð sambönd góð og af hverju samböndin okkar verði ekki sjálfkrafa bara betri með árunum.  

Á undanförnum árum hef ég lesið fjöldan allan af bókum um sambönd og samskipti og í þeim má finna ansi margt um það sem ber að varast, eins og t.d. ofangreind atriði, sem samkvæmt mjög svo óáreiðanlegum heimildum eru hlutir sem konur vilja bara alls ekki ræða. En í þessum bókum fann ég líka hafsjó upplýsinga um allt það sem maður þarf að tileinka sér til að ganga í augun á öðru fólki og allskonar ráðleggingar um allt það sem gerir sambönd  meira spennandi, áhugaverðari eða innilegri.  En undantekningarlaust eru  skilaboðin þau sömu – að maður er ekki nóg eins og maður er. Að til þess að maður sé einhvers virði þá þurfi maður að vera hærri, grennri eða vöðvastæltari,  skemmtilegri, fyndnari eða áhugaverðari, ríkari, gáfaðri eða ævintýragjarnari.

Þetta er ekki flókið; það eina sem maður þarf að gera er að vera fullkominn!

Í heimi sem krefst fullkomnunnar er óhjákvæmilegt að finna fyrir óöryggi og skömm. Óöryggi yfir því að einhver gæti áttað sig á því hversu meingölluð við erum og skömm yfir því að vera ekki nóg.  Þú veist, að vera ekki nógu fullkominn til þess að öllum líki við mann og finnist maður dásamlegur, frábær og yndislegur. 

Þessi krafa um fullkomnun er að öllum líkindum ástæðan fyrir þessum ráðleggingum um hvað má og má ekki ræða og er líka ástæðan fyrir því að við eigum oft í mjög yfirborðskenndum samskiptum. Innileg nándarsamtöl upplýsa nefnilega nokkuð fljótlega það sem við óttumst mest, að fólk átti sig á því hversu miklir gallagripir við erum.

Ég veit um fólk sem finnst ég vera of óþolinmóð og væmin og taka sjálfa mig allt of alvarlega og ég veit að það er ekki séns í-því-neðra að ég geti gert öllum til hæfis. Enda þarf ég þess ekki, því góð og innileg samskipti hafa ekkert með utanaðkomandi hluti eins og útlit, hæfileika eða aðstæður að gera. Það hefur hins vegar allt með það að gera að fólki líði vel með sjálfan sig í kringum mann og að maður fái að vera maður sjálfur án þess að það sé stanslaust verið að reyna að lagfæra mann á einhvern hátt eða leiðrétta.  Í öllu okkar hausarusli  yfir því að vera  ekki nóg, þá erum við stöðugt að minna aðra á það að þeir eru það ekki heldur.  

Við stjórnumst í fólki (því við vitum náttútulega miklu betur hvernig aðrir eiga að haga sínu lífi), við gagnrýnum aðra (í þeirri von um að þeir geri hlutina eins og okkur finnst skynsamlegast) og verðum reið eða förum í fýlu ef fólk gerir svo ekki það sem við viljum. Ég veit það fyrir mitt leiti að þegar mér finnst ég þurfa að réttlæta mig, skoðanir mínar eða aðstæður á einhvern hátt þá verð ég óörugg og fer í vörn. Ég er nefnilega stanslaust að gera eins vel og ég get.

Vörn kallar alltaf fram það versta í fólki. Fólk sem fer í vörn bregst yfirleitt við með því að draga sig til baka (hætta að koma til manns jafn oft eða fara í fýlu) eða með gagnárás (sem endar yfirleitt með rifrildi eða sárindum).

Vörn gerir nánast allt til þess að draga fram leiðinlegustu og bitrustu hliðarnar í manni.

Það hafa flestir kynnst fólki sem laðar fram það besta í okkur. Í kringum það fólk líður okkur vel með okkur sjálf, við erum afslöppuð, hugsum skýrar og finnst við kannski smá pínu dásamleg. Í þeim félagsskap finnst okkur við vera betri manneskjur og okkur langar þá líka dáldið að gera heiminn að betri stað. Þeir sem leyfa mér að vera sá kjáni og gallagripur sem ég er,  gera mín mistök og styðja mig samt, það er fólkið sem fær að sjá allar mínar bestu hliðar og mig langar ósjálfrátt að vera í sífellt meiri samskiptum við það fólk.  Það að fá að vera ég sjálf, þessi dásamlega ófullkomna skvísa sem ég er, með allt mitt hausarusl og alla mína sérvisku, kallar fram þá bestu tilfinningu sem til er í heiminum –  að vera nóg, eins og ég er.

Þetta er sú tilfinning sem við leitumst stöðugt og allsstaðar eftir í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur og af hverju erum við þá að neita öðrum um þá dásamlegu líðan?

Lífið er ótrúlega einfalt.  Njóttu þess að eiga stund með fólkinu þínu án þess að þurfa að laga nokkurn skapaðan hlut í fari þeirra. Njóttu allra þeirra góðu eiginleika sem þau hafa til að bera og fagnaðu svo þeirri staðreynd að við erum einfaldlega dásamlega ófullkomin- sem gerir lífið að þessu stórkostlega ævintýri sem það er.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst