Herrakvöld ÍBV verður í Höllinni í kvöld. Nokkuð löng hefð er fyrir Herrakvöldi á vegum handboltadeildar en kvöldið hefur verið vel sótt undanfarin ár. „Þátttaka hefur alltaf verið góð og lengi vel vorum við með þetta um borð í Herjólfi en Herrakvöldið sprengdi hann utan af sér og við fluttum í Höllina,“ sagði Viktor Ragnarsson, rakari sem komið hefur að undirbúningnum.